Skoðun

Ekki linnir Lottóskrifum

Eiður Guðnason skrifar um Lottó.

Nýjasta framlag íþróttahreyfingarinnar til umræðunnar um Lottó er grein Harðar Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Golfsambands Íslands, í Fréttablaðinu 16. desember. Hörður segir réttilega að Lottóhagnaðurinn sé opinbert fé. Þessvegna beindi ég spurningum til framkvæmdastjóra Íslenskrar getspár, sem rekur Lottóið. Hann kaus að svara ekki, heldur talaði um fyrirspyrjanda sem „fólk úti í bæ", sem ekki væri skylt að upplýsa um fjármál Lottósins. Kannski framkvæmdastjóri GSÍ skýri málið fyrir framkvæmdastjóra Íslenskrar getspár.

Hörður segir það ómerkilegt að gefa í skyn að lottógróðinn sé notaður til að greiða ofurlaun og stunda brask. Hvaðan kemur íþróttahreyfingunni þá fé til að kaupa erlenda atvinnumenn í íþróttum hingað til lands og hvaðan koma UMFÍ fjármunir til stórbyggingar í miðbænum (sem engin þörf er á) þar sem átti meðal annars að reka hótel í samstarfi við félag sem þá var undir stjórn eins af forkólfum Framsóknar?

Þeirri spurningu Harðar hvort ekki sé eðlilegt að endurskoða önnur einkaleyfi til reksturs happdrætta og spilakassa svara ég játandi. Mér finnst ekkert sjálfgefið að Rauði krossinn og Háskóli Íslands hafi tekjur af rekstri spilakassa. Mér finnst það raunar fremur óviðfelldið. Meiri vafi finnst mér leika á hinum hefðbundnu gömlu happdrættum. Þó er sjálfsagt að endurskoða þetta allt í heild. Engu fyrirkomulagi af þessu tagi er ætlað að standa til eilífðarnóns. Ég hef aðeins sagt að tímabært sé að endurskoða núverandi einkaleyfi og skiptingu hagnaðar. Jákvæð viðbrögð við þessum skrifum hafa sýnt mér, að ég er langt frá því að vera einn um þá skoðun.

Varðandi fjármögnun starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga þá ætti hún fyrst og fremst að koma frá sveitarstjórnum og að hluta frá íþróttaiðkendum. Þeir sem sækja tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands greiða hluta af kostnaði við reksturinn með miðakaupum.

Og að lokum: Hörður talar um forvarnargildi íþrótta. Íþróttir geta vissulega haft forvarnargildi, ef rétt er á málum haldið. En vænt þætti mér um ef Hörður útskýrði fyrir mér og lesendum Fréttablaðsins forvarnargildið sem felst í því gagnvart unglingum að hafa áfengi á boðstólum í golfskálum, þar sem fjöldi unglinga fer um.

Höfundur er fyrrverandi alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×