Lóðaskortsstefna R-listans 11. nóvember 2009 06:00 Hver man ekki söng sjálfstæðismanna í Reykjavík allt síðasta kjörtímabil sem náði hámarki fyrir kosningar þar sem fullyrt var að Reykjavíkurlistinn stundaði lóðaskortsstefnu. Ekki var nægt lóðaframboð, lóðirnar voru ekki nógu ódýrar, Reykjavíkurborg var ekki að standast „samkeppni" við nágrannasveitarfélögin. Borgin var að dragast afturúr, allt vegna hinnar meintu lóðaskortsstefnu Reykjavíkurlistans. Þessi söngur var í efsta sæti vinsældalista sjálfstæðismanna árið 2006. Sjálfstæðismenn skiptu svo sannarlega um gír hvað varðar úthlutanir lóða þegar þeir komust til valda. Tekið var upp fastverðs fyrirkomulag á lóðaúthlutunum og lóðum í nýjum hverfum borgarinnar dælt út af miklu kappi, langt undir markaðsverði, í samkeppni við sjálfstæðismenn í Kópavogi. Nú er þessi bóla eins og aðrar bólur sjálfstæðismanna sprungin og sú skelfilega staðreynd blasir við, að fjárfestingar fyrir á annað hundrað milljarða króna standa nú ónotaðar og tekjulausar fyrir samfélagið í nýbyggingarhverfum. Til að vinda ofan af þessu þarf íbúafjöldi á höfuðborgarsvæðinu að aukast um 20%. Þegar þetta er dregið fram í dagsljósið bregst formaður Skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, Júlíus Vífill Ingvarsson, við með því að reyna að kenna Reykjavíkurlistanum um ástandið. Segja það svo á „lágu plani" að tala um þessi mál, því á bak við tóma grunna séu harmsögur og brostnar vonir fjölskyldna. Þá þykir mér nú fyrst ástæða til að ræða málin. Ef engin væru fórnarlömbin og engar afleiðingar væri glæpurinn ekki stór og ástæðulaust að fara yfir stöðu þessara mála. En það eru afleiðingar og fórnarlömb og ljóst að stefna Sjálfstæðisflokksins brást í þessu sem svo mörgu öðru. Sjálfstæðismenn geta reynt að hagræða ýmsu en það er beinlínis móðgun við allt hugsandi fólk að þeir reyni að kenna Reykjavíkurlistanum og Samfylkingunni um offramboð á lóðum í Reykjavík eftir áralangan áróður sjálfstæðismanna um meinta lóðaskortsstefnu Reykjavíkurlistans. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Hver man ekki söng sjálfstæðismanna í Reykjavík allt síðasta kjörtímabil sem náði hámarki fyrir kosningar þar sem fullyrt var að Reykjavíkurlistinn stundaði lóðaskortsstefnu. Ekki var nægt lóðaframboð, lóðirnar voru ekki nógu ódýrar, Reykjavíkurborg var ekki að standast „samkeppni" við nágrannasveitarfélögin. Borgin var að dragast afturúr, allt vegna hinnar meintu lóðaskortsstefnu Reykjavíkurlistans. Þessi söngur var í efsta sæti vinsældalista sjálfstæðismanna árið 2006. Sjálfstæðismenn skiptu svo sannarlega um gír hvað varðar úthlutanir lóða þegar þeir komust til valda. Tekið var upp fastverðs fyrirkomulag á lóðaúthlutunum og lóðum í nýjum hverfum borgarinnar dælt út af miklu kappi, langt undir markaðsverði, í samkeppni við sjálfstæðismenn í Kópavogi. Nú er þessi bóla eins og aðrar bólur sjálfstæðismanna sprungin og sú skelfilega staðreynd blasir við, að fjárfestingar fyrir á annað hundrað milljarða króna standa nú ónotaðar og tekjulausar fyrir samfélagið í nýbyggingarhverfum. Til að vinda ofan af þessu þarf íbúafjöldi á höfuðborgarsvæðinu að aukast um 20%. Þegar þetta er dregið fram í dagsljósið bregst formaður Skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, Júlíus Vífill Ingvarsson, við með því að reyna að kenna Reykjavíkurlistanum um ástandið. Segja það svo á „lágu plani" að tala um þessi mál, því á bak við tóma grunna séu harmsögur og brostnar vonir fjölskyldna. Þá þykir mér nú fyrst ástæða til að ræða málin. Ef engin væru fórnarlömbin og engar afleiðingar væri glæpurinn ekki stór og ástæðulaust að fara yfir stöðu þessara mála. En það eru afleiðingar og fórnarlömb og ljóst að stefna Sjálfstæðisflokksins brást í þessu sem svo mörgu öðru. Sjálfstæðismenn geta reynt að hagræða ýmsu en það er beinlínis móðgun við allt hugsandi fólk að þeir reyni að kenna Reykjavíkurlistanum og Samfylkingunni um offramboð á lóðum í Reykjavík eftir áralangan áróður sjálfstæðismanna um meinta lóðaskortsstefnu Reykjavíkurlistans. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingar.
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar