Öfugmæli í Fréttablaðinu og á ÍNN Hermann Þórðarson skrifar 9. desember 2009 06:00 Í forystugrein Fréttablaðsins 17.11 skrifar Jón Kaldal grein um ESB og vænir þar samtökin Heimssýn, um að haga sér eins og sértrúarsöfnuður. Ég geri ráð fyrir því að JK sé Samfylkingarmaður og stuðningsmaður aðildar eftir þessum skrifum að dæma. Andúð greinarhöfundar beinist sérstaklega að nýkjörnum formanni Heimssýnar, Ásmundi Daða Einarssyni, þingmanni VG, og öðrum flokksbræðrum hans sem hafa vogað sér að standa upp í hárinu á Samfylkingunni í Icesave/ESB-málinu og tekið eigin sannfæringu, eins og þeim ber samkvæmt stjórnarskránni að gera, fram yfir hollustu við framkvæmdarvaldið, sem virðist vera í höndunum á fyrrverandi dýrlingi og væntanlegum landsölumanni, sem kúgar forystu VG til fylgis við ríkistjórnina í Evrópumálunum. Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn á Íslandi sem styður heilshugar aðild að ESB, hvað sem það kostar og minnir það um margt á hvernig sértrúarsöfnuðir haga sér. Samfylkingin telur sig vera jafnaðarmannaflokk en hagar sér eins og argasti íhaldsflokkur í þessum málum. Það er með ólíkindum hvernig VG lætur kúga sig í þessu máli og öðrum vafasömum málum sem núverandi ríkisstjórn beitir sér fyrir. Hvað varðar aðildarumsókn til að fá svar við spurningum okkar sem varða fyrst og fremst auðlindir landsins, þá er það þegar vitað hver svörin verða. Allir ábyrgir aðilar innan sambandsins hafa fullyrt að okkur standi ekki til boða neinar varanlegar undanþágur frá núgildandi lögum og reglum ESB. Allt annað er bara blekking. Hvað varðar lokaákvörðun um væntanlegan samning um aðild þá hefur Samfylkingin ákveðið, verði hún áfram við völd, að þjóðaratkvæðagreiðsla komi ekki til með að hafa nein áhrif á það hvort samningurinn verði samþykktur af meirihluta Alþingis eða ekki. Þessi atkvæðagreiðsla verður því ekki bindandi, heldur aðeins „ráðgefandi". Önnur öfugmæli sem komu mér verulega á óvart var stuðningsyfirlýsing Heimastjórnar/Heimsstjórnar Ingva Hrafns á ÍNN, en þeir hafa hingað til verið taldir ákveðnir stuðningsmenn „Bláu handarinnar" í sjónvarpsþætti Ingva Hrafns á sjónvarpsstöðunni ÍNN. Þar var lýst yfir stuðningi við skipun Þorsteins Pálssonar í samninganefnd Íslands við ESB um aðild vegna reynslu hans í t.d. alþjóðamálum sem fyrrverandi sendiherra. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og ritstjóri Fréttablaðsins, er einn af höfundum kvótakerfisins sem færði eina af mikilvægustu auðlindum landsin í hendurnar á útvöldum vinum þáverandi stjórnvalda. Ég efast ekki um það að ÞP mun ekki hika við að gera hið sama fyrir „diplomatíska" vini sína í ESB.Höfundur er ríkisstarfsmaður á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Í forystugrein Fréttablaðsins 17.11 skrifar Jón Kaldal grein um ESB og vænir þar samtökin Heimssýn, um að haga sér eins og sértrúarsöfnuður. Ég geri ráð fyrir því að JK sé Samfylkingarmaður og stuðningsmaður aðildar eftir þessum skrifum að dæma. Andúð greinarhöfundar beinist sérstaklega að nýkjörnum formanni Heimssýnar, Ásmundi Daða Einarssyni, þingmanni VG, og öðrum flokksbræðrum hans sem hafa vogað sér að standa upp í hárinu á Samfylkingunni í Icesave/ESB-málinu og tekið eigin sannfæringu, eins og þeim ber samkvæmt stjórnarskránni að gera, fram yfir hollustu við framkvæmdarvaldið, sem virðist vera í höndunum á fyrrverandi dýrlingi og væntanlegum landsölumanni, sem kúgar forystu VG til fylgis við ríkistjórnina í Evrópumálunum. Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn á Íslandi sem styður heilshugar aðild að ESB, hvað sem það kostar og minnir það um margt á hvernig sértrúarsöfnuðir haga sér. Samfylkingin telur sig vera jafnaðarmannaflokk en hagar sér eins og argasti íhaldsflokkur í þessum málum. Það er með ólíkindum hvernig VG lætur kúga sig í þessu máli og öðrum vafasömum málum sem núverandi ríkisstjórn beitir sér fyrir. Hvað varðar aðildarumsókn til að fá svar við spurningum okkar sem varða fyrst og fremst auðlindir landsins, þá er það þegar vitað hver svörin verða. Allir ábyrgir aðilar innan sambandsins hafa fullyrt að okkur standi ekki til boða neinar varanlegar undanþágur frá núgildandi lögum og reglum ESB. Allt annað er bara blekking. Hvað varðar lokaákvörðun um væntanlegan samning um aðild þá hefur Samfylkingin ákveðið, verði hún áfram við völd, að þjóðaratkvæðagreiðsla komi ekki til með að hafa nein áhrif á það hvort samningurinn verði samþykktur af meirihluta Alþingis eða ekki. Þessi atkvæðagreiðsla verður því ekki bindandi, heldur aðeins „ráðgefandi". Önnur öfugmæli sem komu mér verulega á óvart var stuðningsyfirlýsing Heimastjórnar/Heimsstjórnar Ingva Hrafns á ÍNN, en þeir hafa hingað til verið taldir ákveðnir stuðningsmenn „Bláu handarinnar" í sjónvarpsþætti Ingva Hrafns á sjónvarpsstöðunni ÍNN. Þar var lýst yfir stuðningi við skipun Þorsteins Pálssonar í samninganefnd Íslands við ESB um aðild vegna reynslu hans í t.d. alþjóðamálum sem fyrrverandi sendiherra. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og ritstjóri Fréttablaðsins, er einn af höfundum kvótakerfisins sem færði eina af mikilvægustu auðlindum landsin í hendurnar á útvöldum vinum þáverandi stjórnvalda. Ég efast ekki um það að ÞP mun ekki hika við að gera hið sama fyrir „diplomatíska" vini sína í ESB.Höfundur er ríkisstarfsmaður á eftirlaunum.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun