Skoðun

Fá þeir fátækustu ekki hækkun?

Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 kemur fram að þeir fátækustu fá enga hækkun á sinni framfærslu sem er og verður 115.567 kr. á mánuði. Svo virðist sem núverandi meirihluti í Reykjavík hafi hvorki áhuga né skilning á aðstæðum þeirra sem fátækastir eru í samfélaginu og hafa því hafnað tillöguflutningi okkar fulltrúa Samfylkingarinnar um hækkun fjárhagsaðstoðar. Við höfum lagt til hækkun í samræmi við hækkun lágmarkslauna eða um 13.500 á mánuði og yrði þá grunnurinn 129.067 kr. Sú tillaga var felld með 4 atkvæðum meirihluta velferðarráðs 18. nóv. sl. en vísað til gerðar fjárhagsáætlunar. Þar gerðist ekkert. Kostnaður við þessa hækkun er tæplega 163 milljónir króna á ársgrundvelli og merkilegt að tillagan hafi ekki verið tekin upp af meirihlutanum þegar í ljós kom að tekjur borgarinnar yrðu á næsta ári 2,6 milljörðum meiri en áætlað hafði verið.

Það er hlutverk sveitarfélaga að tryggja að íbúar þeirra geti lifað með reisn. Sem höfuðborg á Reykjavík að vera í fararbroddi sveitarfélaga um félagslega þjónustu og það var borgin lengst af. Reykjavík var fyrst sveitarfélaga til að greiða sérstaka fjárhagsaðstoð til barna árið 2005. Þá var upphæðin 10 þús. á mánuði en er nú 11.365 kr. Þá tók Reykjavíkurborg upp jólauppbót árið 2003 án þess að dæmi væru um slíkt hjá öðrum sveitarfélögum.

Þrátt fyrir að íslenskt samfélag horfi nú upp á stórfellda fjölgun þeirra sem búa við fátækt hafa reglur um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar ekki tekið neinum breytingum. Formaður velferðarráðs segir mikilvægt að hafa skýrar og gegnsæjar reglur. Það er mikilvægt, en mikilvægast er að sjá að núverandi framfærsluaðstoð Reykjavíkur dugir fólki ekki til að draga fram lífið. Það er óumræðanlega sárt þegar jólin nálgast.

Ég trúi því ekki fyrr en á reynir að borgarstjórnarmeirihlutinn sitji fast við þá ákvörðun að hækka ekki framfærslu þeirra sem fátækastir eru. Þau geta treyst því að við fulltrúar Samfylkingarinnar munum samþykkja hækkun fjárhagsaðstoðarinnar – um það verður ekki pólitískt moldvirði.

Höfundur er borgarfulltrúi.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×