Greining: Fjölmargt hvílir á samþykkt Icesave 19. október 2009 12:01
Fjölmargir þættir í uppbyggingu efnahagslífisins hvíla á samþykkt Icesave samkomulagsins. Má þar nefna greiðslu á öðrum hluta láns frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og greiðslu lána frá hinum Norðurlöndunum ásamt láni frá Póllandi. Einnig hvílir fyrsti áfangi í afnámi gjaldeyrishafta á þessari samþykkt sem og lánshæfi íslenskra ríkisins. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þá hafi samþykktin í för með sér auknar líkur á vaxtalækkun að hálfu Seðlabankans og að stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðarins og íslenskra stjórnvalda haldi. Verði það sem líkur virðast vera á nú, að frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave verði samþykkt af Alþingi, mun yfirstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins taka fyrir fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar sjóðsins og íslenskra stjórnvalda. Fyrsta endurskoðunin og annar hluti lánsins hefur dregist umtalsvert en upprunalega var hún á dagskrá í febrúar á þessu ári. Dráttur í endurskipulagningu bankanna, Icesave deilan, Alþingiskosningar og breytingar á ríkisstjórn, tafir á framlagningu langtímaáætlunar í ríkisfjármálum o.fl. mál hafa valdið töfum. Með Icesave samningnum og samþykkt ríkisábyrgðar vegna hans á Alþingi eru öll mál í höfn fyrir endurskoðunina. Fyrirhugað er að nýta lán AGS til að styrkja gjaldeyrisfroða Seðlabankans. Til viðbótar við lán AGS koma lán frá hinum Norðurlöndunum og Póllandi. Lán þessara aðila eru háð samþykkt AGS á öðrum hluta láns síns til Íslands. Þannig hvíla þau lán einnig á lausn Icesave-deilunnar og munu þessi lönd væntanlega greiða út u.þ.b. 470 milljónir evra þegar endurskoðun AGS er í höfn. Með samþykkt Icesave samkomulagsins er líklegt að ráðist verði í fyrsta áfanga í afnámi gjaldeyrishafta, en í þeim áfanga á að létta höftum af innstreymi erlendrar fjárfestingar. Fyrsta skrefið í þeim áfanga sem er áformað 1. nóvember n.k. og verða þá afnumin höft á nýfjárfestingar sem fela í sér innstreymi erlends gjaldeyris. Líkt og segir í nýlegri greinargerð Seðlabankans um afleiðingar þess að ekki náist sátt í Icesave-deilunni í bráð og að endurskoðun efnahagsáætlunar AGS og íslenskra stjórnvalda tefjist vegna þess er að líklega mun lánshæfismat Íslands verða lækkað ef slík staða kemur upp. Eitt stóru matsfyrirtækjanna, Fitch Ratings, tekur raunar einnig fram í mánaðargamalli skýrslu að þessi geti orðið raunin. Í áðurnefndri greinargerð Seðlabankans um Icesave segir að forsenda þess að vextir Seðlabankans lækki án þess að tefla stöðugleika krónunnar í tvísýnu er að traust á krónuna aukist. Bankinn segir að verulegar tafir á því að Icesave-samkomulagið náist gætu leitt til þessa að ógerlegt verði fyrir bankann að halda vaxtalækkunarferlinu áfram og í versta falli að hann þurfi að hækka vexti til að verja gengi krónunnar. Með samkomulaginu nú eru því auknar líkur á því að bankinn muni halda vaxtalækkunarferli sínu áfram á næstunni.
Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira