Heimilisbókhald Kárahnjúkavirkjunar 8. ágúst 2009 06:00 Skuldir vegna raforkuframleiðslu til stóriðju ná fljótlega tugum milljarða króna - nema það kraftaverk gerist að álverð tvöfaldist. Gagnlegt er að færa heimilisbókhald og það er mikilvæg hjálp við að ná endum saman. Aðalatriðið er að tekjurnar séu meiri en útgjöldin. Fróðlegt er líka og gagnlegt að færa einfalt bókhald yfir rekstur fyrirtækja sem við eigum - og berum ábyrgð á. Eitt stærsta og mikilvægasta fyrirtækið í eigu okkar allra er Landsvirkjun. Því miður er bókhald Landsvirkjunar töluvert flókið og góðum sérfræðingum er treyst fyrir því. En ársskýrslur Landsvirkjunar eru að mörgu leyti til fyrirmyndar og þar er t.d. hægt að finna allar helstu tölur sem þarf til að færa einfalt bókhald fyrir Kárahnjúkavirkjun. Í meðfylgjandi töflu sést að stofnkostnaður virkjunarinnar er nálægt 160 milljörðum króna eða tæplega 2,4 milljarðar bandaríkjadala sem er sú mynt sem orkan er greidd með. Árleg útgjöld virkjunarinnar má meta út frá stofnkostnaði hennar. Varlega áætlað er rekstrarkostnaður um 2%, önnur 2% bætast við vegna 50 ára afskriftatíma og loks eru vaxtagjöld varla minni en 4%. Árstekjurnar þurfa því að ná a.m.k. 190 milljónum dala til að ná jöfnu og helst vill þjóðin hafa einhvern arð af fyrirtækinu. Tekjur af raforkusölu eru nokkuð á huldu en prýðilegur útgangspunktur er í skýrslu iðnaðarráðherra frá 23. mars 2008, þ.e. áætlaðar tekjur upp á 8643 milljónir króna eða 111 milljónir dala. Út frá upplýsingum í ársskýrslum Landsvirkjunar 2007 og 2008, ásamt upplýsingum um álframleiðslu í ársskýrslum Samtaka iðnaðarins, má ráða hversu mikil orka var seld Fjarðaáli árið 2008 svo og hvert meðalverð orku til stóriðju var. Vitað er að orkuverðið er beintengt álverði og þannig sést að orkuverð til álvera nær ekki 20 mils eða 20 þúsundustu úr bandaríkjadal fyrir kílóvattstundina þegar álverð er 2000 dollarar á tonnið. Álverð er nú um 1800 dalir á tonnið og meðalverð ársins fer varla yfir 2000 dollara markið. Fjarðaál kaupir í mesta lagi 4,7 Gwst af raforku á árinu og greiðir fyrir í mesta lagi 100 milljónir dala. Að óbreyttu verður því a.m.k. 90 milljóna dala halli á heimilisbókhaldinu árið 2009! Það gerir víst 11,5 milljarða króna. Jafnvel þótt álverð fari í 3000 dali tonnið þá nást ekki endar saman, tapið verður yfir 40 milljónum dala á ári. Greinilega var samið um alltof lágt orkuverð miðað við stofnkostnað, sem reyndar fór nærri 50% fram úr áætlun í dölum talið, en við því mátti vel búast. Að óbreyttu mun raforkusala til stóriðju sliga Landsvirkjun og skuldabagginn lenda á skattgreiðendum. Til að forða því er hugsanlegt að semja um niðurfellingu á lánum eða hærra raforkuverð. Hvorugt er þó líklegt. Besta leiðin til að jafna þetta heimilisbókhald er að leggja sérstakan orku- og auðlindaskatt á selda raforku og væri það verðugt framlag til að endurreisa efnahag þjóðarinnar. Höfundur er lífefnafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar