Hin hljóðláta bylting lífsorkunnar Hallur Hallsson skrifar 20. ágúst 2009 05:00 Úti í hinum stóra heimi fer hljóðlát bylting líkt og eldur í sinu. Mannkyn stendur á þröskuldi nýrrar heimsmyndar. Uppgötvanir á áhrifamætti lífsorkunnar eru að breyta læknisfræði og heilsugæslu. Við erum orka sem birtir sig í efni. Sú staðreynd er að koma af fullu afli inn í líf fólks, venjulegs fólks sem í vaxandi mæli tekur ábyrgð á eigin heilsu með því að rækta og virkja lífsorkuna um orkupunkta líkamans. Því er spáð að að áratug liðnum muni læknavísindin fyrst og fremst beita lífsorku við meðferð sjúkdóma, andlegs og líkamlegs eðlis. Mannkyn hefur þekkt áhrifamátt lífsorkunnar í árþúsundir. Fyrir fimm þúsund árum kortlögðu Kínverjar orkubrautir líkamans. Þeir þróuðu læknisfræði sína, svokallaða nálastunguaðferð. Kínverskir spekingar kenndu að með því að virkja orkubrautir mætti lækna kvilla og sjúkdóma. Á undanförnum áratugum hefur hin kínverska speki fest rætur á Vesturlöndum.Uppgötvun dr. CallahanFyrir tæpum aldarfjórðungi þróaði bandarískur geðlæknir, dr. Roger Callahan, svokallaða Thought Field Therapy, TFT sem nú er viðurkennd innan sálfræðinnar.Árið 1986 gerði dr. Callahan nánast af tilviljun stórmerka uppgötvun. Hann hafði haft til meðferðar konu sem hafði fóbíu gagnvart vatni, var ofurhrædd við vatn í baðkari. Það þurfti ekki nema botnfullt baðkar til þess að vekja hjá henni skelfingu. Dr. Callahan hafði meðhöndlað konuna í 18 mánuði með litlum árangri og að sjálfsögðu leitað orsaka í huga konunnar, líkt og geðlækna og sálfræðinga hefur verið siður. Dag einn bað hann konuna að slá á orkupunkt á kinnbeini; orkupunkt tengdan maga. Það gerði konan og hið ótrúlega átti sér stað.Vatnshræðsla hennar hvarf eins og dögg fyrir sólu og hefur aldrei aftur gert vart við sig.Dr. Callahan hafði gert merkilega uppgötvun. Hin neikvæða tilfinning, fóbían var truflun á orkuflæði í orkubraut, í þessu tilfelli magabrautinni. Dr. Callahan þróaði meðferðina TFT sem hefur verið rannsökuð við margar helstu vísindastofnanir veraldar.Gary Craig þróar EFTÁratug síðar hóf gamall nemandi dr. Callahan, Gary Craig að þróa aðferðafræði TFT fyrir allan almenning. Hann kallaði aðferð sína EFT, Emotional Freedom Technique. Á nýrri öld fer EFT sigurför í grasrótinni, meðal fólks sem aðhyllist náttúrulækningar en heilbrigðisstéttir, læknar og vísindamenn beina sjónum sínum í vaxandi mæli að heilunarmætti lífsorkunnar. Í stuttu máli gengur EFT útá að „tappa“ á helstu orkupunkta líkamans. Með svokallaðri uppskrift eða „recipe“ er „tappað“: fingurgómum slegið létt á helstu orkupunktana og huganum beint að viðfangsefni: það kann að vera hvað sem er, minning, kvíði, streita, verkur, sjúkdómur. Orsakir kvíða, streitu, verkja, sjúkdóma liggja í truflun í orkubrautum líkamans. Áhrifin eru mögnuð og stöðugt koma fram nýjar vísbendingar um heilunarmátt lífsorkunnar. LifeWave uppgötvun David SchmidtFyrir nokkrum árum var bandarískur vísindamaður, David Schmidt, að baxa við lífsorkuna í bílskúrnum sínum. Hann þróaði plástra til þess að örva orkupunktana, svokallaða LifeWave plástra. Aðferðin er í prinsippinu hin sama og TFT og EFT.Schmidt flutti úr bílskúrnum árið 2002. LifeWave haslar sér nú völl um allan heim og er eitt framsæknasta fyrirtæki heims. Orkuplástrar bæta orkuflæði og áhrifin sérdeilis mögnuð gegn þreytu, sleni, verkjum, öldrun, offitu og svefnleysi. Íþróttamenn eins og David Beckham og Michael Phelps nota LifeWave. TFT, EFT og LifeWave eru að að breyta heiminum.Í vor kynntist ég EFT, sótti námskeið til Bretlands. Skömmu síðar kynntist ég LifeWave og reiðubúinn að deila reynslu minni. Fólk segir ótrúlegar sögur; höfuðverkir hverfa, bakverkir, kvíði, streita, þunglyndi og svo framvegis. Bara eitt dæmi: ungur maður slasaðist í bílslysi. Hann fór þrisvar í viku í sjúkraþjálfun og gleypti verkjalyf án þess að finna bót meina sinna. Í dag meðhöndlar hann orkupunktana með orkuplástri. Hann hvorki gleypir verkjalyf né fer í sjúkraþjálfun.Prófessor nokkur hefur spunnið ritdeilu í Fréttablaðinu um LifeWave. Við því er að búast úr heimi efnishyggjunnar en úti í hinum stóra heimi uppgötva milljónir galdra EFT og LifeWave. Hljóðlát bylting fer um heiminn; bylting sem skapar nýja heimsmynd og leiða mun af sér vitundarvíkkun mannkyns. Höfundur er blaðamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar