Arshavin er ekki bjargvættur Arsenal 4. febrúar 2009 09:55
Rússneski landsliðsmaðurinn Andrei Arshavin náði loksins að skrifa undir samning við Arsenal í gær - sólarhring eftir að félagaskiptaglugginn lokaðist. Þar með lauk því sem rússneskir blaðamenn hafa kallað Arshavin-sápuóperuna en samningaviðræður milli Arsenal og Zenit í Pétursborg gengu vægast sagt illa þar til samningar náðust í höfn á elleftu stundu. Daily Mail heldur því fram í dag að nokkrir aðilar á Englandi hafi látið í ljós óánægju sína með það að Arsenal hafi fengið svo langan tima til að ganga frá samningum við leikmanninn, því félagið hefði haft allan tíma í heiminum til að ganga frá málinu á tilsettum tíma. Þegar kemur að leikmanninum sjálfum, sem reyndar er fjarri því að vera í góðu leikformi að eigin sögn, er ekki gefið að hann sé bjargvættur Arsenal ef marka má tvo kappa sem þekkja til í bransanum. Þannig segir nafni hans Andrei Kanchelskis, fyrrum leikmaður Manchester United, að Arsenal hafi borgað allt of háa upphæð fyrir hann. Miðjumaðurinn sé í mesta lagi sjö milljón punda virði - ekki tólf. "Það er allt annar leikstíll á Englandi en hann á að venjast og það verður mjög erfitt fyrir hann að aðlagast honum," sagði Kanchelskis. Alexei Smertin, fyrrum leikmaður Chelsea og Fulham, tekur í sama streng. "Fótboltinn í úrvalsdeildinni útheimtir meiri hraða og meiri kraft og þar verða menn að vera toppíþróttamenn til að ná árangri," sagði Smertin.
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira