Skoðun

Hönnun og list

Talsverðar umræður hafa spunnist út af bókun okkar í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur út af vali á borgarlistamanni í ár. Eins og gjarnan gerist koma fram ýkjur og oftúlkanir, og rökræn niðurstaða nokkrum setningum síðar er sú að undirrituð séu óbærilega hrokafull og gjörræðisleg. Svona vill þetta nú oft verða í umræðum á Íslandi, fólk verður stóryrtara en það þarf að vera.

Þeir sem vilja setja list og hönnun undir sama hatt hafa ýmislegt til síns máls, og verði það krafa félagsmanna skulum við hafa forgöngu um að taka til athugunar nýja skipan á regnhlífarsamtökum þeim sem kallast Bandalag íslenskra listamanna og við erum í forsvari fyrir þessi misserin. Við getum meira að segja tekið undir með Goddi að sama sé hvaðan gott komi.

En rétt eins og okkur ber að tala fyrir okkar hagsmunasamtök, talar Goddur sem kennari í hönnunardeild Listaháskólans og er þar af leiðandi ekki óhlutdrægur aðili, frekar en rektor og deildarforseti sama skóla. Fríða á Mogganum er á hlutlausu svæði og kemur með ágæt rök. Það má vissulega spyrja: Er frábær fatahönnuður ekki jafnmikils virði og frábær listmálari? - og því mundum við seint svara neitandi, en jafnframt má spyrja á móti: Hver er ástæðan til þess að yfirleitt er verið að skilja á milli einstakra starfsstétta á þessu sviði?

Samtök listamanna hljóta að standa vörð um hagsmuni sína rétt eins og önnur stéttarfélög. Með harðfylgi hefur listamönnum tekist að ýta á ráðamenn til að fá reistar stofnanir utan um starfsemi sína, það eru til launasjóðir, sem líklega væru ekki björgulegir ef ekki hefði verið dugandi fólk í forystu fyrir samtökum okkar. Grunnurinn að þessu öllu er að litið sé á listamenn sem atvinnumenn, hverja á sínu sviði. Orðið listamaður verður þannig í okkar augum starfsheiti, rétt eins og læknir, blaðamaður eða - hönnuður. Í almennu máli finnst orðið listamaður þó vissulega í merkingunni: einhver sem kann sitt fag, sem vinnur verk sitt vel.

Því má svo bæta við að á meðan hönnuðir líta gjarnan á sig sem listamenn, leyfist listamönnum ekki alltaf að líta á sig sem hönnuði, eins og nýleg samkeppni, Hönnun í anda Erró, ber vitni um. Þar liggja væntanlega einhverjar faglegar forsendur að baki - en sama gildir þá um bókun okkar í ráðinu. Og þeir sem saka okkur um óbilgirni ættu ekki gleyma því að Bandalagið samþykkti fyrir sitt leyti nú í vetur að sérstakur sjóður verði stofnaður fyrir hönnuði í lögum um starfslaun listamanna.

Vitrænustu athugasemdirnar koma síðan frá Steinunni Sigurðardóttur borgarlistamanni sjálfri, þar sem hún hvetur til samvinnu og sátta. Vitaskuld kviðum við því að henni kynni að sárna bókunin, en aldrei var það ætlunin að gera lítið úr henni eða verkum hennar. Viðbrögð hennar eru henni og stéttinni allri til sóma. Þessi margverðlaunaði hönnuður er greinilega hátt yfir argaþrasið hafinn.

Ágúst Guðmundsson er forseti BÍL og Áslaug Thorlacius formaður SÍM.






Skoðun

Sjá meira


×