Leikskólar fá aukið fjármagn 14. desember 2009 06:00 Ragnar Sær Ragnarsson skrifar um leikskólamál í Reykjavík Að undanförnu hefur verið fjallað um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar í fjölmiðlum. Þar hefur leikskólastarf m.a. verið til umfjöllunar og fram hefur komið að foreldrar og starfsfólk leikskóla bera ugg í brjósti um áhrif hagræðingar á starf skólanna á komandi ári. Við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar í borgarstjórn þann 3. desember var ákveðið að leggja aukalega 150 milljónir króna til starfs leikskóla borgarinnar á komandi ári. Nú er ljóst að eftir þessa ákvörðun munu heildarfjárveitingar til leikskólastarfs í Reykjavík aukast um 100 milljónir á milli ára. Heildarkostnaður leikskólasviðs Reykjavíkur er um tíu milljarðar á árinu 2010. Stærstur hluti þessara fjármuna er framlag úr borgarsjóði en hlutur foreldra í kostnaði er um 11 prósent. Við vinnslu fjárhagsáætlunar var upphaflega miðað við 5,76% hagræðingarkröfu á leikskólasvið en niðurstaðan varð hagræðing sem nemur 4,1%. Meginhluti hagræðingarinnar næst fram í yfirstjórn og innkaupum, en starfsemi leikskólanna sjálfra ber einungis 1,8% hagræðingu. Verulegur ávinningur er nú þegar sýnilegur með nýjum útboðum. Aukning verður í grænum innkaupum með því að akstur aðfanga og innkaup verða samtvinnuð. Þá hefur verið ákveðið að ný börn verði ekki vistuð inn á sumarleyfistíma starfsfólks eins og verið hefur í nokkrum skólum. Af þessu leiðir að starfsfólk getur tekið samfellt sumarleyfi án þess að álag aukist á aðra starfsmenn eða afleysingarfólk sé ráðið í staðinn. Jákvæð og eðlileg viðbrögð foreldra um gæði í leikskólastarfi eru ofarlega í huga þeirra sem koma að gerð tillagna fyrir sviðið enda erum við flest jafnframt foreldrar barna í leikskólum borgarinnar. Leikskólasvið hélt opinn fund með foreldrum þann 12. nóvember sl. til að fara yfir stefnu og markmið í leikskólastarfi næsta árs og kynna markmiðasetningu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010. Fulltrúum úr foreldraráðum og foreldrafélögum var sérstaklega boðið að taka þátt í umræðum. Á fimmta tug mættu og komu fram margar góðar ábendingar til leikskólasviðs sem fylgt hefur verið. Farið er eftir ábendingum foreldra, barna og starfsfólks þegar tilgreind eru framtíðarskref og áherslur í starfi leikskólanna á næsta starfsári. Foreldrar þurfa í engu að kvíða um metnaðarfullt og faglegt starf í leikskólunum og því síður um öryggi barna sinna. Allt slíkt tal er ábyrgðarlaust. Aldrei áður hafa leikskólar borgarinnar verið jafn vel skipaðir starfsfólki og er nýting skólanna af þessum sökum 100% um þessar mundir. Rúmlega 200 börn eiga nú kost á leikskólaplássi vegna þessa, umfram þann fjölda sem skólarnir hafa annað undanfarin ár. Í mörgum tilvikum þýðir þetta beinan peningalegan sparnað fyrir foreldrana, þar sem leikskólagjöldin eru lægri en kostnaður foreldra við önnur úrræði. Hlutfall háskólamenntaðra starfsmanna hefur aukist um 10 prósentustig og er áætlað að tæplega 60% starfsmanna verði með háskólapróf á árinu 2010. Í nýlegri könnun kom fram að aukin og jákvæð þjónustu við börn og foreldra lýsir sér best í því að 98% foreldra telja að barni sínu líði vel í leikskólanum og 95% telja að komið sé til móts við þarfir barna þeirra. Þetta hlutfall hefur aldrei verið hærra. Þetta jákvæða viðhorf er fyrst og fremst að þakka frábæru starfsfólki og stjórnendum leikskólanna. Enginn leikskóli er betri en starfsfólkið sem þar vinnur. Gæði leikskólastarfs liggja í þeim mannauði sem er til staðar í sérhverjum skóla. Framsækið leikskólastarf mun áfram ráða ríkjum. Má í því sambandi nefna að áfram er haldið með öflugan sjóð til að byggja upp nýbreytni og þróunarstarf leikskólanna. Þá hefur verið settur á laggirnar vinnuhópur til að kanna grundvöll fyrir alþjóðlegar þekkingarheimsóknir erlendra kennara til Íslands. Launakjör haldast óbreytt eða hækka á árinu 2010. Neysluhlé sem er greiðsla til starfsmanna sem vinna með börnum á leikskólunum heldur áfram. Stöðugleiki í starfsmannahaldi skapar aukna ánægju og betri þjónustu. Um 8.200 börn njóta framlaga borgarinnar á árinu 2010. Leikskólagjöld í Reykjavík eru lægri en annars staðar og munar þar verulegu. Þá er 100% systkinaafsláttur þannig að foreldrar greiða í raun einungis gjald með einu barni. Engin áform eru uppi um breytingu á gjaldskrá. Höfundur er formaður leikskólaráðs Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar