Segir þrjá ráðgjafa fjárlaganefndar vanhæfa Helga Arnardóttir skrifar 26. júlí 2009 18:31
Þingmaður Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd segir þrjá ráðgjafa sem nefndin hafi kallað til sín fullkomlega vanhæfa og hlutdræga þar sem þeir sitji ýmist í samninganefndinni, sem gerði Icesave samkomulagið við Breta, eða komu að samningagerðinni. Í samningnum skuldbindi þeir sig til að fylgja því eftir að hann verði samþykktur á Alþingi. Fjárlaganefnd Alþingis hefur nú unnið að Icesave samkomulaginu undanfarnar vikur. Enn hefur uppgreiðslusamningurinn sjálfur ekki verið gerður opinber en búist er við því að það verði gert á næstunni. Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknar og fulltrúi flokksins í fjárlaganefndinni segir að þrír ráðgjafar sem nefndin hafi kallað til sín vegna Icesave samningsins sitji beggja vegna borðsins og séu því vanhæfir. „Þau skuldbinda sig gagnvart Bretunum að vinna að hvers kyns löggjöf sem þarf til þess að við staðfestum samninginn hér á Alþingi. Það er í mínum huga eitthvað það versta sem hefur komið í ljós. Vegna þess að þessir aðilar hafa verið að veita svokölluð óháð álit ef óháð skyldi kalla," segir Höskuldur. Þetta eru þau Indriði H. Þorláksson aðstoðarmaður fjármálaráðherra og Áslaug Árnadóttir ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins sem sitja í samninganefndinni sjálfri. Auk þess naut samninganefndin aðstoðar lögfræðingsins Eiríks E. Þorlákssonar sem er framkvæmdastjóri Innstæðutryggingasjóðs. „Ef við hefðum vitað fyrirfram að þau væru skuldbundin samkvæmt samningnum að vinna að framgangi hans þá hefðum við ekki kallað þessa aðila til ráðgjafar eða til þess að veita óháð álit út af samningsgerðinni."
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Fleiri fréttir Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Sjá meira