Kalla eftir efndum á stöðugleikasáttmála 8. september 2009 18:54
Stöðugleikasáttmálinn er í uppnámi vegna vanefnda stjórnvalda, að mati forystumanna Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands, sem funduðu um málið í dag. Þeir segja hugmyndir um vaxtahækkun ögrun og segja pólitískar æfingar koma í veg fyrir að virkjanaframkvæmdir komist í gang.Þolinmæðin er á þrotum og þeir vilja fá fund með ríkisstjórninni á næstu dögum um að stjórnvöld efni sinn hluta stöðugleikasáttmálans. Vilmundur Jósefsson, starfandi formaður SA, segir að sáttmálinn sé orðinn tæpur á tíma og lítið hafi gerst. Þeir telji því miður að Alþingi og ríkisstjórn hafi verið að draga lappirnar.Þeir minna á að launalið kjarasamninga var frestað fram í október meðal annars til að gefa Seðlabankanum tíma til að lækka vexti niður fyrir tíu prósent. Vilmundur segir ekkert hafa gerst í vaxtamálum. Nýskipaður seðlabankastjóri hafi þvert á móti áréttað að það myndi alveg eins koma til vaxtahækkana. Það setji að mönnum hroll. Það sé tvímælalaust ögrun gagnvart stöðugleikasáttmálanum.Þeir þrýsta líka á að fyrirheit um framkvæmdir verði efnd og nefnir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, bæði framkvæmdir á vegum hins opinbera, sem lífeyrisjóðir hafi verið tilbúnir að fjármagna, og stórframkvæmdir í stóriðju. Vilmundur segir ekkert hafa gerst í orkuframkvæmdum og svo virðist sem pólitískar æfingar komi í veg fyrir að byrjað sé á virkjunum. Gylfi segir að við blasi einhver hringlandaháttur í því hvaða virkjanakostir séu í boði og hvað stórfyrirtæki megi gera og það þurfi að taka um það pólitískar ákvarðanir.Vilmundur segir að atvinnulífið sé á heljarþröm. 15 þúsund manns séu atvinnulausir og það liggi í augum uppi að það verði að taka til hendinni.Gylfi segir ljóst að kjarasamningur ASÍ-félaga hangi enn á bláþræði, eins og hann gerði í júní, og ef hann fari í sundur sjái hann ekki hvað hangi þá eftir af stöðugleikasáttmálanum.
Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Fleiri fréttir Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Sjá meira