2012 tækifæri… 18. maí 2009 06:00 Ingi Bogi Bogason skrifar um iðn- og tæknimenntun Að undanförnu hafa Samtök iðnaðarins birt auglýsingar þar sem óskað er eftir vel menntuðu fólki til fjölda starfa eftir þrjú ár. Árið 2012 verður íslenskt samfélag á hraðri leið úr öldudalnum. Þá verður mikil eftirspurn eftir vel menntuðu fólki í áliðnaði, byggingariðnaði, listiðnaði, líftækni, matvælaiðnaði, málm- og véltækni, prentiðnaði og upplýsingatækni. Þess vegna er ástæða fyrir ungt fólk að íhuga vel námsval sitt, einmitt nú, vorið 2009. Ákvörðun um menntun til næstu ára snýr ekki síður að stjórnvöldum en ungu fólki. Framundan er aðhald og niðurskurður í ríkisbúskapnum. Gæta þarf þess að slíkar aðgerðir bitni ekki á fyrirtækjum heldur skapi þeim réttlátan og varanlegan rekstrargrundvöll. Á þessum grunni þarf að vera hægt að byggja fyrirtækin aftur upp, m.a. mannauð þeirra. Mikið er talað um að í krafti vel menntaðs vinnuafls munum við hafa ríkari möguleika en ella til að ná okkur fljótt og vel úr kreppunni. Það gerist hins vegar ekki af sjálfu sér. Stjórnvöld þurfa að skapa stefnu í menntamálum sem ýtir undir og auðveldar menntakerfinu að vera einn af lykilþáttum í endurreisn landsins.Menntun sem skapar vinnuSamtök iðnaðarins hafa árum saman lagt áherslu á mikilvægi verk- og tæknifræðimenntunar á háskólastigi og iðn- og starfsmenntunar á framhaldsskólastigi. Við búum við öflugt menntakerfi á þessum sviðum sem við getum nýtt enn betur og markvissar án þess að kosta miklu til. Iðnmenntun er kennd við framhaldsskóla í öllum landshornum. Fjölbreytni í verkfræði og skyldum greinum hefur snaraukist undanfarin ár, m.a. með tilkomu öflugrar tækni- og verkfræðideildar við HR.Einungis 75% íslenskra ungmenna á aldrinum 18-24 ára ljúka viðurkenndu námi í framhaldsskóla. Á Norðurlöndunum er sú tala 85-95%. Þetta þýðir að fleiri fara hér halloka á vinnumarkaði en vera þyrfti og íslensk fyrirtæki skortir aðgang að jafn samkeppnishæfu starfsfólki og í nágrannalöndunum. Margt ungt fólk er til vitnis um að iðn- og tæknimenntun skilar sér í góðum störfum síðar meir. Bæði iðnmenntun og verkfræðimenntun felur í sér möguleika til margbreytilegra skapandi starfa. Aðsókn í þessa menntun er góð en þyrfti að vera meiri. Það þarf nefnilega miklu fleira fólk með menntun á þessum sviðum til að byggja upp atvinnulíf morgundagsins.Menntun sem borgar skuldirKoma þarf í veg fyrir rof í menntun ungs fólks. Við þurfum að tryggja, eins og kostur er, að sem flestir ljúki prófi úr framhaldsskóla og að drjúgur hluti þeirra haldi áfram námi í háskóla. En um leið þarf að beina athygli þessa fólks að menntun sem skilar því skapandi og vel launuðum störfum, hjá fyrirtækjum sem skapa sem mest verðmæti fyrir land og þjóð. Stjórnvöld þurfa að leggja málinu lið. Þau þurfa að tryggja, eins og kostur er, að iðn- og starfsmenntun, verk- og tæknifræðimenntun sé sett í öndvegi.Þessi menntun skilar hraðast hagnaði í sameiginlegan sjóð landsmanna. Þetta er menntunin sem byggir upp arðbæran atvinnurekstur og gerir okkur kleift að greiða niður skuldir okkar á næstu árum.Gæði fyrir kostnaðFramundan eru hagræðingartímar. Þá þarf að beita eins hlutlægum aðferðum og kostur er. Eitt sjónarmið hlýtur þá að vega þungt; að sem mest gæði fáist fyrir opinber fjárframlög til menntunar. Iðnmenntun, verkfræði- og tæknimenntun skilar sér hratt í betur reknum og arðsömum fyrirtækjum. Því þarf sérstaklega að hlúa að þessari tegund menntunar. Höfundur er forstöðumaður menntunar og mannauðs hjá Samtökum iðnaðarins. Stjórnvöld þurfa að skapa stefnu í menntamálum sem ýtir undir og auðveldar menntakerfinu að vera einn af lykilþáttum í endurreisn landsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar