Sport

DAKAR: Volkswagen spilar á stöðuna

Robby Gordon reyndi að sækja af kappi á lið Volkswagen, sem varði fyrsta og annað sætið með öruggum akstril.
Robby Gordon reyndi að sækja af kappi á lið Volkswagen, sem varði fyrsta og annað sætið með öruggum akstril. Mynd: AFP
Volkswagen liðið tók öryggið fram yfir samkeppni í Dakar rallinu í dag. Ökumenn liðsins voru í tveimur fyrstu sætunum í upphafi dags og liðsstjórinn sagði áhöfnunum tveimur að koma bílunum heilum heim í stað þess að keppa um fyrsta sætið.

Keppninni lýkur á morgun og Volkswagen menn eru með tæplega eina og hálfa klukkustunda á Robby Gordon á Hummer og ætla að spila á stöðuna á morgun. Aka af öryggi, en í gær féll Carlos Sainz úr leik á Volkswagen eftir að hafa verið í forystu í rallinu lengst af.

Volkswagen menn hleyptu Gordon framúr og eltu hann síðan til að hafa auga á honum.

"Það var mikilvægt fyrir að halda stöðunni eftir óhapp Sainz, sem var leitt að skyldi gerast. Yfirmaður okkar vildi að við kláruðum daginn án áhættu og við hlýddum honum. Það er tilgangslaust að taka áhættu núna og kasta frá sér mögulegum sigri", sagði forystumaðurinn Giniel de Villiers. Hann er með tveggja mínútna forskot á Mark Miller.

Joan Roma á Mitsubishi náði besta tíma dagsins. Norðmaður er í fjórða sæti á Nissan, en Ivar Erik Tollefsen hefur ekið vel en er 5 klukkutímum á eftir fyrsta bíl. Marc Coma á KTM er enn fyrstur í flokki mótorhjóla og líklegur til að vinna flokki á lokadegi rallsins á laugardag.

Heildarstaðan í Dakar

1. Giniel de Villiers Volkswagen 46:35:14

2. Mark Miller Volkswagen + 2:20

3. Robby Gordon Hummer + 1:27:13

4. Ivar Erik Tollefsen Nissan + 5:55:01

5. Krzysztof Holowczyc Nissan + 6:37:32

6. Joan Roma Mitsubishi + 7:27:08

7. Dieter Depping Volkswagen + 8:28:55

8. Miroslav Zapletal Mitsubishi +10:52:26

9. Leonid Novitskiy BMW +13:15:11

10. Rene Kuipers BMW +14:40:17






Fleiri fréttir

Sjá meira


×