Aðrar þjóðir senda herlið 5. desember 2009 05:00 Á ráðherrafundiþ Hillary Rodham Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tekur í hendina á Sjeik Abdúlla bin Zayed Al Nahyan, utanríkisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna. David Miliband, utanríkisráðherra Breta, horfir á.Fréttablaðið/AP
Áætlað er að 25 lönd hið minnsta sendi nálægt 7.000 hermenn til viðbótar til Afganistans á næsta ári. Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), upplýsti um þetta í gær. Á sama tíma fundaði Hillary Rodham Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, með utanríkisráðherrum annarra NATO-ríkja og sagði þeim að sameinað átak væri nauðsynlegt til að snúa við taflinu í stríðsrekstrinum í Afganistan. Anders Fogh segist jafnframt eiga von á að fleiri lönd bætist í hópinn. Hann segir þau 44 lönd sem þegar taki þátt í innrásinni í Afganistan vera „algjörlega sameinuð“ í viðleitni sinni í að ná viðunandi árangri í stríðinu í Afganistan sem nú hefur staðið í átta ár. „Öflugustu skilaboð dagsins snúa að samstöðu,“ sagði hann. „Löndin standa við orð sín með aðgerðum.“ Þá sagði James Stavridis, aðmíráll í sjóher Bandaríkjanna, æðsti yfirmaður NATO og herafla Bandaríkjanna í Evrópu, í viðtali við fréttastofu AP að kalla mætti til nokkur þúsund hermenn, aðra en frá Bandaríkjunum, á næsta ári, til viðbótar við þá 7.000 sem Anders Fogh vísar til. „Við leggjum á það áherslu við þau lönd sem mögulega leggja til mannafla að við horfum helst til fólks sem kemur að þjálfun,“ sagði Stavridis. „Og mér heyrist að undirtektir séu góðar hvað það varðar.“ Hillary Clinton sagði á fundi utanríkisráðherranna að nauðsynlegt væri að öll viðbót við stríðsreksturinn ætti sér stað eins fljótt og auðið væri. Hún þakkaði Ítölum og Bretum fyrir skjót viðbrögð og yfirlýsingar um viðbótarherlið, en sagði um leið að aðstoð önnur en með fjölgun hermanna væri jafn mikilvæg. „Knýjandi þörf er á að fjölga hermönnum, en þeir verða ekki endalaust á staðnum,“ sagði hún í ræðu sinni við Norður-Atlantshafsráðið og vísaði til orða Bandaríkjaforseta um að hefja ætti brottflutning bandarískra hermanna frá Afganistan í júlí 2011. „Hraði og umfang brottflutningsins fer eftir aðstæðum í landinu.“ Anders Fogh Rasmussen lýsti svipuðum viðhorfum á blaðamannafundi í gær. Hann segir að þótt Afganar fái aukin yfirráð í landi sínu þýði það ekki endilega fullan brottflutning herafla NATO. Anders Fogh gat ekki um skiptingu milli landa vegna þeirra hermanna sem senda á til viðbótar til Afganistans, en nafnlausir heimildarmenn AP innan NATO segja að staðfest loforð nái til um 5.500 hermanna og búist sé við um 1.500 til viðbótar frá öðrum löndum. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira