Aftur til ársins 2007 Sævar Freyr Þráinsson skrifar 16. maí 2009 06:00 Verði frumvarp til nauðasamninga Teymis samþykkt mun eiga sér stað alvarlegur markaðsbrestur á einum mikilvægasta samkeppnismarkaði landsins, fjarskiptamarkaði. Frumvarpið gerir ráð fyrir að skuldir Teymis, Vodafone, Kögunar, Skýrr og fleiri dótturfélaga verði skrifaðar niður um 30 milljarða króna og ekki verði byrjað að greiða afborganir af þeim lánum sem eftir standa fyrr en á árinu 2011. Í blönduðu hagkerfi, þar sem jafnræði skal ríkja á markaði, er algerlega nauðsynlegt að leikreglur séu skýrar og að eitt gangi yfir alla. Tillögur um stórkostlega fyrirgreiðslu ríkisbanka gagnvart einum aðila á markaði fela augljóslega í sér mismunun gagnvart öðrum. Rekstur TeymisÍ nóvember 2006 varð til fyrirtækið Teymi og rúmum tveimur árum síðar er Teymi gjaldþrota. Félagið skuldaði um 50 milljarða króna í árslok 2008 og var með neikvætt eigið fé upp á 25 milljarða króna. Á þessu tímabili tóku stjórnendur Teymis fjölmargar afdrifaríkar ákvarðanir.Vandamál Teymis máttu vera öllum ljós um mitt seinasta ár og hefði mátt forðast mikinn skaða ef gripið hefði verið til ráðstafana þá. Eigið fé félagsins var að brenna upp. Þá var ákveðið að endurmeta virði farsímakerfis Vodafone.Bókfært virði kerfisins var fært upp um 5,4 milljarða til að styrkja eigið fé, á pappírunum að minnsta kosti. Fyrir þessa fjármuni hefði mátt byggja tvö ný landsdekkandi farsímakerfi! Svona mætti lengi telja en allt ber að sama brunni; Teymi var komið í þrot löngu áður en til hruns íslensks bankakerfis kom.Eða hvernig öðruvísi getur eigið fé fyrirtækis farið úr því að vera jákvætt um 7,5 milljarða í það að vera neikvætt um 25 milljarða á 8 mánuðum? Ástæðurnar voru ekki hvirfilbyljir á alþjóðlegum lánamörkuðum heldur röð mistaka og rangar ákvarðanir í rekstri félagsins. Jafnræði?Tillagan nú er að breyta óheyrilegum skuldum í hlutafé í eigu ríkisbankanna með þeim afleiðingum að dótturfélög Teymis, til dæmis Vodafone, standi eftir, hóflega skuldsett, tilbúin í grimma samkeppni sem aldrei fyrr. Orðrétt segir: „Vaxtagreiðslur hefjast í byrjun árs 2010 en afborganir í byrjun árs 2011. Vegna mikillar óvissu um framvindu í íslensku efnahagslífi og þróun vaxta fela þessi greiðslukjör í sér verulegt svigrúm til greiðslu afborgana og vaxta."Standa slík kjör öðrum fyrirtækjum til boða eða eiga þau eingöngu við fyrirtæki sem búið er að keyra í þrot? „Óvissa í efnahagslífinu" á að sjálfsögðu við um alla sem starfa á íslenskum markaði og víst að allir tækju fegins hendi tilboði frá banka um „verulegt svigrúm". Tökum dæmi af Símanum og Skiptum. Þessi fyrirtæki hafa alltaf greitt af sínum lánum og keypt gengisvarnir. Þegar harðna fór á dalnum var gripið til viðamikilla og erfiðra aðhaldsaðgerða í rekstrinum; starfsfólk tók á sig launalækkun, dregið var úr fjárfestingum, endursamið við birgja og svo mætti lengi telja. Niðurstaðan er sú að fyrirtækin hafa staðið storminn af sér og ekkert bendir til annars en að svo verði áfram. Okkar starfsfólk spyr nú: „Til hvers erum við að þessu ef ríkið tekur á sig öll vandamál samkeppnisaðilans svo hann geti haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist?" MarkaðsbresturAð kollvarpa markaðnum þannig að þeim sé umbunað sem ekki standa sig er ekki bara ósanngjarnt heldur beinlínis hættulegt fyrir samfélagið til lengri tíma litið. Þessi aðferð gengur þvert á tilmæli Samkeppniseftirlits í áliti nr. 3 frá 2008 um að fyrirtækjum sé ekki mismunað með ómálefnalegum hætti auk þess sem erfitt er að sjá hvernig hún getur samræmst ríkisstyrkjareglum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.Sé það ætlun ríkisbankanna að skrifa niður skuldir fyrirtækja sem hafa keyrt sig í þrot til þess að þau haldi áfram rekstri er það lágmarkskrafa að horft sé til annarra fyrirtækja á viðkomandi mörkuðum. Verði skuldir Teymis skrifaðar niður með þessum hætti hverfur Teymi aftur til ársins 2007, sömu stjórnendur en verulega lægri skuldir en þá. Vandinn er sá að það er komið árið 2009 hjá okkur hinum.Höfundur er forstjóri Símans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar