Brettum upp ermar 8. september 2009 06:15 Ekki má gera lítið úr þeirri erfiðu stöðu sem þjóðin er í. Sú staða er þó líkleg til að versna til muna ef við náum ekki að snúa vörn í sókn, neikvæðni í jákvæðni og vonleysi í hugrekki. Hvert og eitt okkar á í raun tvo valkosti. Við getum valið að trúa því að ekkert muni breytast til hins betra í kjölfar hrunsins mikla og lagt árar í bát eða við getum valið að sjá tækifærin sem felast í umbreytingartímum og tekið virkan þátt í að endurreisa og skapa hér heilbrigt, gjöfult og árangursríkt samfélag. Síðara viðhorfið er betri valkostur og líklegra til árangurs. Tækifærin eru mörg. Nauðsynlegur niðurskurður á fjárlögum felur til dæmis í sér tækifæri til að spyrja hvernig við viljum haga menntun, heilbrigðis- og velferðarmálum. Við erum í aðstöðu til að hugsa hlutina upp á nýtt og skapa samfélag sem endurspeglar betur þá framtíð sem við kjósum. Niðurskurður þarf ekki að þýða síðri menntun eða verra velferðarkerfi ef við höfum hugrekki og þor til að hugsa í skapandi lausnum. Það er ekki líklegt til árangurs að bíða þess að kjörnir fulltrúar okkar leysi hvern þann vanda sem við stöndum frammi fyrir. Nærtækara er að opinberar stofnanir og leiðtogar þeirra nýti sinn hæfileikaríka mannauð til að leita leiða til sparnaðar sem og nýsköpunar með það að markmiði að bæta þjónustuna þrátt fyrir minna fjármagn. Endurnýjanlegar orkulindir, hreint vatn, matvæli og náttúra skapa einstök tækifæri til verðmætasköpunar og vel menntaður mannauður er nú á lausu til að nýta slík tækifæri. Fjármagn er til reiðu, bæði innlent og erlent, en við þurfum að bretta upp ermar, taka ákvarðanir og fara að vinna. Tími biðstöðu og ákvörðunarfælni er liðinn. Við erum þjóð sem ítrekað hefur tekist á við áskoranir og harðindi og við höfum sýnt og sannað að við getum unnið okkur út úr hverri þeirri áskorun sem við stöndum frammi fyrir. Við höfum í hendi okkar að sameinast um framtíðarsýn og grunngildi sem hugnast okkur öllum. Við eigum að horfast hreinskilnislega í augu við okkur sjálf og læra af mistökunum en við eigum líka að byggja áfram á okkar helstu styrkleikum, frumkvöðlakraftinum og dugnaðinum. Þetta eru þeir eiginleikar þjóðarinnar sem munu reynast hvað mikilvægastir næstu misserin. Þetta verður erfitt en staðan er viðráðanleg ef gjaldeyris- og verðmætasköpun er enn til staðar. Góðir Íslendingar, brettum upp ermar og græðum Ísland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir Skoðun Hamfarir Hildar – seinni hluti Haraldur Freyr Gíslason Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson Skoðun Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko skrifar Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Aukið aðgengi að áfengi? Lísbet Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar loforð duga ekki: Leikskólakerfið í Kópavogsbæ Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Leðurblökur í ráðhúsinu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Um kennaranám Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Reynsla Íslands á erindi við umheiminn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar Skoðun Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar Skoðun Frelsi felst í fleiri valkostum Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Viljum við að fatlað fólk mennti sig? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Bið, endalaus bið Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Kársnesið okkar á betra skilið Thelma Árnadóttir skrifar Skoðun Er íslenskan að missa pláss í eigin landi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fleiri talmeinafræðinga og biðlistana burt Tinna Steindórsdóttir skrifar Skoðun Verkakonuskattur leikskólakerfisins Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Ekki má gera lítið úr þeirri erfiðu stöðu sem þjóðin er í. Sú staða er þó líkleg til að versna til muna ef við náum ekki að snúa vörn í sókn, neikvæðni í jákvæðni og vonleysi í hugrekki. Hvert og eitt okkar á í raun tvo valkosti. Við getum valið að trúa því að ekkert muni breytast til hins betra í kjölfar hrunsins mikla og lagt árar í bát eða við getum valið að sjá tækifærin sem felast í umbreytingartímum og tekið virkan þátt í að endurreisa og skapa hér heilbrigt, gjöfult og árangursríkt samfélag. Síðara viðhorfið er betri valkostur og líklegra til árangurs. Tækifærin eru mörg. Nauðsynlegur niðurskurður á fjárlögum felur til dæmis í sér tækifæri til að spyrja hvernig við viljum haga menntun, heilbrigðis- og velferðarmálum. Við erum í aðstöðu til að hugsa hlutina upp á nýtt og skapa samfélag sem endurspeglar betur þá framtíð sem við kjósum. Niðurskurður þarf ekki að þýða síðri menntun eða verra velferðarkerfi ef við höfum hugrekki og þor til að hugsa í skapandi lausnum. Það er ekki líklegt til árangurs að bíða þess að kjörnir fulltrúar okkar leysi hvern þann vanda sem við stöndum frammi fyrir. Nærtækara er að opinberar stofnanir og leiðtogar þeirra nýti sinn hæfileikaríka mannauð til að leita leiða til sparnaðar sem og nýsköpunar með það að markmiði að bæta þjónustuna þrátt fyrir minna fjármagn. Endurnýjanlegar orkulindir, hreint vatn, matvæli og náttúra skapa einstök tækifæri til verðmætasköpunar og vel menntaður mannauður er nú á lausu til að nýta slík tækifæri. Fjármagn er til reiðu, bæði innlent og erlent, en við þurfum að bretta upp ermar, taka ákvarðanir og fara að vinna. Tími biðstöðu og ákvörðunarfælni er liðinn. Við erum þjóð sem ítrekað hefur tekist á við áskoranir og harðindi og við höfum sýnt og sannað að við getum unnið okkur út úr hverri þeirri áskorun sem við stöndum frammi fyrir. Við höfum í hendi okkar að sameinast um framtíðarsýn og grunngildi sem hugnast okkur öllum. Við eigum að horfast hreinskilnislega í augu við okkur sjálf og læra af mistökunum en við eigum líka að byggja áfram á okkar helstu styrkleikum, frumkvöðlakraftinum og dugnaðinum. Þetta eru þeir eiginleikar þjóðarinnar sem munu reynast hvað mikilvægastir næstu misserin. Þetta verður erfitt en staðan er viðráðanleg ef gjaldeyris- og verðmætasköpun er enn til staðar. Góðir Íslendingar, brettum upp ermar og græðum Ísland.
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar
Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar
Skoðun Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar