Skoðun

Öfugmæli í Fréttablaðinu og á ÍNN

Hermann Þórðarson skrifar
Í forystugrein Fréttablaðsins 17.11 skrifar Jón Kaldal grein um ESB og vænir þar samtökin Heimssýn, um að haga sér eins og sértrúarsöfnuður. Ég geri ráð fyrir því að JK sé Samfylkingarmaður og stuðningsmaður aðildar eftir þessum skrifum að dæma.

Andúð greinarhöfundar beinist sérstaklega að nýkjörnum formanni Heimssýnar, Ásmundi Daða Einarssyni, þingmanni VG, og öðrum flokksbræðrum hans sem hafa vogað sér að standa upp í hárinu á Samfylkingunni í Icesave/ESB-málinu og tekið eigin sannfæringu, eins og þeim ber samkvæmt stjórnarskránni að gera, fram yfir hollustu við framkvæmdarvaldið, sem virðist vera í höndunum á fyrrverandi dýrlingi og væntanlegum landsölumanni, sem kúgar forystu VG til fylgis við ríkistjórnina í Evrópumálunum.

Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn á Íslandi sem styður heilshugar aðild að ESB, hvað sem það kostar og minnir það um margt á hvernig sértrúarsöfnuðir haga sér. Samfylkingin telur sig vera jafnaðarmannaflokk en hagar sér eins og argasti íhaldsflokkur í þessum málum. Það er með ólíkindum hvernig VG lætur kúga sig í þessu máli og öðrum vafasömum málum sem núverandi ríkisstjórn beitir sér fyrir. Hvað varðar aðildarumsókn til að fá svar við spurningum okkar sem varða fyrst og fremst auðlindir landsins, þá er það þegar vitað hver svörin verða. Allir ábyrgir aðilar innan sambandsins hafa fullyrt að okkur standi ekki til boða neinar varanlegar undanþágur frá núgildandi lögum og reglum ESB. Allt annað er bara blekking. Hvað varðar lokaákvörðun um væntanlegan samning um aðild þá hefur Samfylkingin ákveðið, verði hún áfram við völd, að þjóðaratkvæðagreiðsla komi ekki til með að hafa nein áhrif á það hvort samningurinn verði samþykktur af meirihluta Alþingis eða ekki. Þessi atkvæðagreiðsla verður því ekki bindandi, heldur aðeins „ráðgefandi".

Önnur öfugmæli sem komu mér verulega á óvart var stuðningsyfirlýsing Heimastjórnar/Heimsstjórnar Ingva Hrafns á ÍNN, en þeir hafa hingað til verið taldir ákveðnir stuðningsmenn „Bláu handarinnar" í sjónvarpsþætti Ingva Hrafns á sjónvarpsstöðunni ÍNN. Þar var lýst yfir stuðningi við skipun Þorsteins Pálssonar í samninganefnd Íslands við ESB um aðild vegna reynslu hans í t.d. alþjóðamálum sem fyrrverandi sendiherra. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og ritstjóri Fréttablaðsins, er einn af höfundum kvótakerfisins sem færði eina af mikilvægustu auðlindum landsin í hendurnar á útvöldum vinum þáverandi stjórnvalda. Ég efast ekki um það að ÞP mun ekki hika við að gera hið sama fyrir „diplomatíska" vini sína í ESB.

Höfundur er ríkisstarfsmaður á eftirlaunum.








Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×