Skoðun

Annar hver bíll árið 2020

Dofri Hermannsson skrifar

Á þriðjudaginn var lagði Samfylkingin fram tillögu í borgarstjórn þess efnis að Reykjavíkurborg setti sér markmið um að 2020 yrði annar hver bíll knúinn innlendri, vistvænni orku. Ríki, önnur sveitarfélög, samtök og einstaklingar innanlands sem utan yrðu fengnir til liðs við borgina um að ná þessu markmiði.

Þjóðir heims leita nú leiða til að gera bílaumferð vistvænni og losa sig undan oki olíuhagkerfisins. Þróunin hefur orðið hraðari ár frá ári og útlit er fyrir stórstígar breytingar á næstu árum. Samstillt átak þjóða heims um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og ákvörðun um að gera Bandaríkin óháð olíuinnflutningi hefur þar mikið að segja.

Í þessum aðstæðum felast gríðarleg tækifæri fyrir Reykjavíkurborg og Ísland í heild ef rétt er á spilum haldið. Við höfum aðgang að vistvænni raforku á hagstæðum kjörum, við eigum talsvert af metani og rannsóknir á líf- og gervidísil lofa góðu. Við eigum fyrirtæki og starfsfólk með reynslu og þekkingu á sviði vistvænna orkulausna og vegna smæðar samfélagsins geta breytingar hér tekið mun styttri tíma en víðast hvar annars staðar.

Tækifæri okkar eru margs konar en fyrir utan gjaldeyrissparnað og minni mengun getur metnaðarfull stefna kallað á umtalsverða erlenda fjárfestingu í rannsóknum, þróun og innleiðingu nýrrar tækni og skapað með því þúsundir nýrra starfa á næstu tíu árum. Gott dæmi er heimsþekkt vetnisstrætóverkefni Íslenskrar nýorku en yfir 70% af kostnaði við það verkefni var erlent fjármagn.

Hér er um metnaðarfullt en raunhæft markmið að ræða en eins og oftast er reyndin með stór og flókin viðfangsefni þurfa margir að koma að málinu til að markmiðin náist. Samþykkt var að vísa tillögunni til umfjöllunar í umhverfis- og samgönguráði. Þar mun koma í ljós hvort núverandi meirihluti treystir sér til forystu um þetta metnaðarfulla verkefni.

Höfundur er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar






Skoðun

Sjá meira


×