Annar hver bíll árið 2020 Dofri Hermannsson skrifar 17. september 2009 06:00 Á þriðjudaginn var lagði Samfylkingin fram tillögu í borgarstjórn þess efnis að Reykjavíkurborg setti sér markmið um að 2020 yrði annar hver bíll knúinn innlendri, vistvænni orku. Ríki, önnur sveitarfélög, samtök og einstaklingar innanlands sem utan yrðu fengnir til liðs við borgina um að ná þessu markmiði. Þjóðir heims leita nú leiða til að gera bílaumferð vistvænni og losa sig undan oki olíuhagkerfisins. Þróunin hefur orðið hraðari ár frá ári og útlit er fyrir stórstígar breytingar á næstu árum. Samstillt átak þjóða heims um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og ákvörðun um að gera Bandaríkin óháð olíuinnflutningi hefur þar mikið að segja. Í þessum aðstæðum felast gríðarleg tækifæri fyrir Reykjavíkurborg og Ísland í heild ef rétt er á spilum haldið. Við höfum aðgang að vistvænni raforku á hagstæðum kjörum, við eigum talsvert af metani og rannsóknir á líf- og gervidísil lofa góðu. Við eigum fyrirtæki og starfsfólk með reynslu og þekkingu á sviði vistvænna orkulausna og vegna smæðar samfélagsins geta breytingar hér tekið mun styttri tíma en víðast hvar annars staðar. Tækifæri okkar eru margs konar en fyrir utan gjaldeyrissparnað og minni mengun getur metnaðarfull stefna kallað á umtalsverða erlenda fjárfestingu í rannsóknum, þróun og innleiðingu nýrrar tækni og skapað með því þúsundir nýrra starfa á næstu tíu árum. Gott dæmi er heimsþekkt vetnisstrætóverkefni Íslenskrar nýorku en yfir 70% af kostnaði við það verkefni var erlent fjármagn. Hér er um metnaðarfullt en raunhæft markmið að ræða en eins og oftast er reyndin með stór og flókin viðfangsefni þurfa margir að koma að málinu til að markmiðin náist. Samþykkt var að vísa tillögunni til umfjöllunar í umhverfis- og samgönguráði. Þar mun koma í ljós hvort núverandi meirihluti treystir sér til forystu um þetta metnaðarfulla verkefni. Höfundur er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Á þriðjudaginn var lagði Samfylkingin fram tillögu í borgarstjórn þess efnis að Reykjavíkurborg setti sér markmið um að 2020 yrði annar hver bíll knúinn innlendri, vistvænni orku. Ríki, önnur sveitarfélög, samtök og einstaklingar innanlands sem utan yrðu fengnir til liðs við borgina um að ná þessu markmiði. Þjóðir heims leita nú leiða til að gera bílaumferð vistvænni og losa sig undan oki olíuhagkerfisins. Þróunin hefur orðið hraðari ár frá ári og útlit er fyrir stórstígar breytingar á næstu árum. Samstillt átak þjóða heims um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og ákvörðun um að gera Bandaríkin óháð olíuinnflutningi hefur þar mikið að segja. Í þessum aðstæðum felast gríðarleg tækifæri fyrir Reykjavíkurborg og Ísland í heild ef rétt er á spilum haldið. Við höfum aðgang að vistvænni raforku á hagstæðum kjörum, við eigum talsvert af metani og rannsóknir á líf- og gervidísil lofa góðu. Við eigum fyrirtæki og starfsfólk með reynslu og þekkingu á sviði vistvænna orkulausna og vegna smæðar samfélagsins geta breytingar hér tekið mun styttri tíma en víðast hvar annars staðar. Tækifæri okkar eru margs konar en fyrir utan gjaldeyrissparnað og minni mengun getur metnaðarfull stefna kallað á umtalsverða erlenda fjárfestingu í rannsóknum, þróun og innleiðingu nýrrar tækni og skapað með því þúsundir nýrra starfa á næstu tíu árum. Gott dæmi er heimsþekkt vetnisstrætóverkefni Íslenskrar nýorku en yfir 70% af kostnaði við það verkefni var erlent fjármagn. Hér er um metnaðarfullt en raunhæft markmið að ræða en eins og oftast er reyndin með stór og flókin viðfangsefni þurfa margir að koma að málinu til að markmiðin náist. Samþykkt var að vísa tillögunni til umfjöllunar í umhverfis- og samgönguráði. Þar mun koma í ljós hvort núverandi meirihluti treystir sér til forystu um þetta metnaðarfulla verkefni. Höfundur er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar