Stjórn Baugs óskar eftir gjaldþrotaskiptum 11. mars 2009 18:11
Héraðsdómur Reykjavíkur synjaði í dag beiðni Baugs Group um framlengingu greiðslustöðvunar. Í framhaldinu hefur stjórnin félagsins ákveðið að óska eftir því að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. ,,Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur frá í dag eru okkur hjá Baugi mikil vonbrigði," segir Kristín Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Baugs í tilkynningu. Stjórnin telur að Baugur uppfylli öll skilyrði fyrir áframhaldandi greiðslustöðvun og að áætlanir um fjárhagslega endurskipulagningu hafi verið raunhæfar. Niðurstaða Héraðsdóms hafi því komið á óvart. ,,Stjórnendur og starfsmenn Baugs hafa unnið hörðum höndum við að bjarga verðmætum í fyrirtækinu í samvinnu við kröfuhafa félagsins alveg síðan í haust þegar bankakerfið hrundi á Íslandi í kjölfar lánsfjárkreppunnar. Við töldum okkur komin langleiðina með að ná samningum, sem allir hefðu getað vel við unað. En nú er komið að leiðarlokum og í ljósi þeirra breytinga, sem óhjákvæmilega verða, vill stjórn Baugs þakka starfsmönnum og öðrum þeim sem Baugur hefur átt samskipti við fyrir gott samstarf á undanförnum árum," segir Kristín.
Tengdar fréttir Jón Ásgeir: Hefðum betur haldið okkur bara í smásölunni „Mér líður hræðilega eftir þessi tíðindi,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi Baugs, um þá staðreynd að beiðni áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs Group var hafnað í dag. Tíðindin þýða að Baugur er gjaldþrota og Jón Ásgeir segir að þessi niðurstaða muni kosta hluthafa og kröfuhafa mikið fé. 11. mars 2009 16:27 Baugur vildi bíða betri tíðar Baugur, sem var hafnað um áframhaldandi greiðslustöðvun í hádeginu, skuldar 148 milljarði umfram eignir samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá segir í dómsorði að þeir hafi viljað áframhaldandi greiðslustöðvun til þess að bíða betri tíðar. Þar kemur einnig fram að ekki hafi verið raunhæfur möguleiki hjá Baugi að koma nýrri skipan á fjármál sín. 11. mars 2009 12:52 Sjö milljarða tjón ef Baugur fer í þrot Nái beiðni skilanefndar Glitnis fram að ganga að greiðslustöðvun Baugs verði ekki framlengd mun það kosta þjóðina sjö milljarða. Stjórn Baugs og skilanefnd Landsbankans hafa að undanförnu unnið að því að tryggja að verðmætin glatist ekki. 11. mars 2009 09:00 Jón Gerald: Dapurleg endalok Baugs „Mín fyrstu viðbrögð eru að það er mjög dapurt að þetta skuli enda svona," segir Jón Gerald Sullenberger athafnamaður, um úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Baugi var synjað um áframhaldandi greiðslustöðvun. Jóni þykir örlög Baugs sorgleg, þá sérstaklega í ljósi þess að þeir fóru vel af stað í upphafi að hans mati. 11. mars 2009 13:45 Skiptir engu hver fer með forræði yfir Baugi Skilanefnd Glitnis segir engu máli skipta hvort Baugur sé undir forræði núverandi eigenda eða skiptastjóra fyrir hönd kröfuhafa. Eins og greint var frá á Vísi í morgun halda forráðamenn Baugs því fram að verði ekki fallist á áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs muni ríkið tapa sjö milljörðum í formi bréfa í Debenhams verslunarkeðjunni sem eru í vörslu breska bankans HSBC. 11. mars 2009 11:21 Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira
Jón Ásgeir: Hefðum betur haldið okkur bara í smásölunni „Mér líður hræðilega eftir þessi tíðindi,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi Baugs, um þá staðreynd að beiðni áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs Group var hafnað í dag. Tíðindin þýða að Baugur er gjaldþrota og Jón Ásgeir segir að þessi niðurstaða muni kosta hluthafa og kröfuhafa mikið fé. 11. mars 2009 16:27
Baugur vildi bíða betri tíðar Baugur, sem var hafnað um áframhaldandi greiðslustöðvun í hádeginu, skuldar 148 milljarði umfram eignir samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá segir í dómsorði að þeir hafi viljað áframhaldandi greiðslustöðvun til þess að bíða betri tíðar. Þar kemur einnig fram að ekki hafi verið raunhæfur möguleiki hjá Baugi að koma nýrri skipan á fjármál sín. 11. mars 2009 12:52
Sjö milljarða tjón ef Baugur fer í þrot Nái beiðni skilanefndar Glitnis fram að ganga að greiðslustöðvun Baugs verði ekki framlengd mun það kosta þjóðina sjö milljarða. Stjórn Baugs og skilanefnd Landsbankans hafa að undanförnu unnið að því að tryggja að verðmætin glatist ekki. 11. mars 2009 09:00
Jón Gerald: Dapurleg endalok Baugs „Mín fyrstu viðbrögð eru að það er mjög dapurt að þetta skuli enda svona," segir Jón Gerald Sullenberger athafnamaður, um úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Baugi var synjað um áframhaldandi greiðslustöðvun. Jóni þykir örlög Baugs sorgleg, þá sérstaklega í ljósi þess að þeir fóru vel af stað í upphafi að hans mati. 11. mars 2009 13:45
Skiptir engu hver fer með forræði yfir Baugi Skilanefnd Glitnis segir engu máli skipta hvort Baugur sé undir forræði núverandi eigenda eða skiptastjóra fyrir hönd kröfuhafa. Eins og greint var frá á Vísi í morgun halda forráðamenn Baugs því fram að verði ekki fallist á áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs muni ríkið tapa sjö milljörðum í formi bréfa í Debenhams verslunarkeðjunni sem eru í vörslu breska bankans HSBC. 11. mars 2009 11:21