Viðskipti innlent

Stjórn Baugs óskar eftir gjaldþrotaskiptum

Héraðsdómur Reykjavíkur synjaði í dag beiðni Baugs Group um framlengingu greiðslustöðvunar. Í framhaldinu hefur stjórnin félagsins ákveðið að óska eftir því að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta.

,,Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur frá í dag eru okkur hjá Baugi mikil vonbrigði," segir Kristín Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Baugs í tilkynningu.

Stjórnin telur að Baugur uppfylli öll skilyrði fyrir áframhaldandi greiðslustöðvun og að áætlanir um fjárhagslega endurskipulagningu hafi verið raunhæfar. Niðurstaða Héraðsdóms hafi því komið á óvart.

,,Stjórnendur og starfsmenn Baugs hafa unnið hörðum höndum við að bjarga verðmætum í fyrirtækinu í samvinnu við kröfuhafa félagsins alveg síðan í haust þegar bankakerfið hrundi á Íslandi í kjölfar lánsfjárkreppunnar. Við töldum okkur komin langleiðina með að ná samningum, sem allir hefðu getað vel við unað. En nú er komið að leiðarlokum og í ljósi þeirra breytinga, sem óhjákvæmilega verða, vill stjórn Baugs þakka starfsmönnum og öðrum þeim sem Baugur hefur átt samskipti við fyrir gott samstarf á undanförnum árum," segir Kristín.






Tengdar fréttir

Jón Ásgeir: Hefðum betur haldið okkur bara í smásölunni

„Mér líður hræðilega eftir þessi tíðindi,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi Baugs, um þá staðreynd að beiðni áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs Group var hafnað í dag. Tíðindin þýða að Baugur er gjaldþrota og Jón Ásgeir segir að þessi niðurstaða muni kosta hluthafa og kröfuhafa mikið fé.

Baugur vildi bíða betri tíðar

Baugur, sem var hafnað um áframhaldandi greiðslustöðvun í hádeginu, skuldar 148 milljarði umfram eignir samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá segir í dómsorði að þeir hafi viljað áframhaldandi greiðslustöðvun til þess að bíða betri tíðar. Þar kemur einnig fram að ekki hafi verið raunhæfur möguleiki hjá Baugi að koma nýrri skipan á fjármál sín.

Sjö milljarða tjón ef Baugur fer í þrot

Nái beiðni skilanefndar Glitnis fram að ganga að greiðslustöðvun Baugs verði ekki framlengd mun það kosta þjóðina sjö milljarða. Stjórn Baugs og skilanefnd Landsbankans hafa að undanförnu unnið að því að tryggja að verðmætin glatist ekki.

Jón Gerald: Dapurleg endalok Baugs

„Mín fyrstu viðbrögð eru að það er mjög dapurt að þetta skuli enda svona," segir Jón Gerald Sullenberger athafnamaður, um úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Baugi var synjað um áframhaldandi greiðslustöðvun. Jóni þykir örlög Baugs sorgleg, þá sérstaklega í ljósi þess að þeir fóru vel af stað í upphafi að hans mati.

Skiptir engu hver fer með forræði yfir Baugi

Skilanefnd Glitnis segir engu máli skipta hvort Baugur sé undir forræði núverandi eigenda eða skiptastjóra fyrir hönd kröfuhafa. Eins og greint var frá á Vísi í morgun halda forráðamenn Baugs því fram að verði ekki fallist á áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs muni ríkið tapa sjö milljörðum í formi bréfa í Debenhams verslunarkeðjunni sem eru í vörslu breska bankans HSBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×