Hyggjast stoppa í 20 milljarða fjárlagagat á árinu Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 19. júní 2009 19:26
Um níu þúsund opinberir starfsmenn mega búast við lækkun heildarlauna, sælgæti og gos hækkar og margvíslegur niðurskurður verður í starfsemi ríkisins. Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins furðar sig á að ekki skuli farið út í að innheimta skatt af lífeyristekjum, sem gæfi nánast sama pening í ríkissjóð og allar skattahækkanir og aðhald á þessu ári. Bandormurinn kom loks fram í gærkvöldi, frumvarpið sem tekur á því hvernig stjórnvöld ætla að stoppa upp í 20 milljarða króna fjárlagagat. Á þessu ári á að ná inn 22,4 milljörðum króna tæpum, með skattahækkunum upp á 13 milljarða og niðurskurði og frestun framkvæmda upp á 9,4 milljarða. Á næsta ári á að ná hallanum niður um röska 63 milljarða með heldur meiri niðurskurði en hækkunum skatta. Skattahækkanir hafa áður komið fram, nema sykurskatturinn -sem verður að veruleika fyrsta september, þegar virðisaukaskattur á sykur, sætindi og óáfengar drykkjarvörur hækkar upp í 24,5 prósent. Þetta er eini liður skattahækkana í bandorminum sem mun hafa áhrif á neysluvísitölu, um 0,25% stig er talið, sem þýðir hækkun á skuldum heimila um 3600 milljónir króna. Stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að ná hallanum niður með meiri skattahækkunum en niðurskurði. Margvíslegur niðurskurður verður hjá ríkinu, dregið úr nefndalaunum, risnu, bílakostnaði, hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi lækka niður í 350 þúsund krónur og frítekjumark ellilífeyrisþega verður lækkað svo nokkuð sé nefnt. Þá verða laun þeirra níu þúsund opinberra starfsmanna sem hafa yfir 400 þúsund krónur í heildarlaun, endurskoðuð - þó verður ekki hróflað við töxtum eða farið inn í kjarasamninga. Forðast verður að segja upp fólki eftir fremsta megni. Fram kom á þingi í dag að hallinn væri enn meiri en áætlað var, segir Tryggvi. Og þá verður sporsla til æðstu manna ríkisins afnumin, hún vegur kannski ekki þungt, en er táknræn. Þegar forseti flýgur af landi brott fá staðgenglar hans - forsætisráðherra, forseti alþingis og forseti Hæstaréttar, laun ofan á sín eigin meðan forsetinn er erlendis. Þessi laun hlaupa á milljónum árlega.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri Sjá meira