Sakborningar segja gleðikonur hafa verið skráðar fyrir Papeyjarskútunni Helga Arnardóttir skrifar 27. júlí 2009 12:04 Peter Rabe leiddur út úr varðskipinu Tý eftir handtöku.
Þrír sakborninga í Papeyjarmálinu sem eiga að hafa siglt fíkniefnunum til Íslands neita allir sök og segjast hafa verið í tveggja vikna fríi á skútunni. Nöfn þriggja íslenskra kvenna voru skráð í áhöfn skútunnar en tveir sakborninga segja þær hafa verið gleðikonur. Þær hafi aldrei komið um borð. Þetta kom fram í aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hollendingurinn Peter Rabe sem er meintur höfuðpaur í málinu var yfirheyrður fyrst. Hann neitaði sök og sagði að hann Rúnar Þór Róbertsson og Árni Hrafn Ásbjörnsson hafi ákveðið að fara í tveggja vikna frí á skútunni Sirtaki sem hófst í Belgíu í byrjun apríl. Þetta staðfestu Rúnar Þór og Árni Hrafn í morgun. Peter Rabe leigði skútuna á sínu nafni en ásamt þeim þremur voru skráð þrjú nöfn íslenskra kvenna. Bæði Peter og Rúnar Þór segja þær hafa verið gleðikonur sem átti að sækja til Hollands. Ákveðið hafi verið að sleppa því og því komu þær aldrei um borð í skútuna. Hvorki Peter Rabe né aðrir vilja kannast við hvernig nöfn þessara kvenna komust á áhafnarlistann. Skútunni var siglt dag og nótt að ströndum Íslands. Nákvæmar staðsetningar hafa ekki komið fram en talið er að skútan hafi verið um 30-40 sjómílum frá landi. Hinir þrír sakborningarnir hafa játað sök í málinu en segjast hafa haldið að verið væri að flytja inn stera. Jónas Árni Lúðvíksson segist hafa haft milligöngu um málið. Hann hafi búið í Rotterdam á þessum tíma og menn hafi haft samband við hann og spurt hvort hann hefði áhuga á að flytja inn stera til landsins. Jónas útvegaði bíl og slöngubát fyrir flutning efnanna. Hann viðurkenndi fyrir dómi í morgun að hafa svo fengið Pétur Kúld Pétursson og Halldór Hlíðar Bergmundsson til liðs við sig. Hann segir þá ekki hafa vitað um málið fyrr en á seinni stigum þess auk þess sem þeir héldu að um stera væri að ræða. Halldór sigldi með Jónasi á slöngubátnum og tók á móti fíkniefnunum en Pétur ók bílnum sem flutti þau frá höfninni í Djúpavogi. Jónas vildi ekki gefa upp nöfn þeirra sem afhendu þeim fíkniefnni úr skútunni og sagði að sér hefði verið hótað eftir að hann losnaði úr einangrun á Litla hrauni. Aðalmeðferð málsins mun standa yfir í dag og á morgun.
Papeyjarmálið Tengdar fréttir Var hótað vegna Papeyjarmálsins Jónas Árni Lúðvíksson, einn af sex sakborningum í svokölluðu Papeyjarmáli, segir að honum hafi borist hótanir vegna smyglmálsins þegar hann varð laus úr einangrunarvist í fangelsinu. Menn sem hafi komið að skipulagningu smyglsins hafi sagt honum að honum væri hollast að hafa hljótt um málið. Þetta kom fram í máli Jónasar við aðalmeðferð þess í morgun. 27. júlí 2009 11:54 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira
Var hótað vegna Papeyjarmálsins Jónas Árni Lúðvíksson, einn af sex sakborningum í svokölluðu Papeyjarmáli, segir að honum hafi borist hótanir vegna smyglmálsins þegar hann varð laus úr einangrunarvist í fangelsinu. Menn sem hafi komið að skipulagningu smyglsins hafi sagt honum að honum væri hollast að hafa hljótt um málið. Þetta kom fram í máli Jónasar við aðalmeðferð þess í morgun. 27. júlí 2009 11:54