Skoðun

Drengirnir á Alþingi

Síðasta vika hefur farið í umræðu um Icesave, reynt hefur á þolrifin í málþófi og margt verið sagt. Sumt nokkuð gáfulegt, annað miður gáfulegt og á stundum hefur maður skammast sín fyrir sinn annars góða vinnustað.

Hvað sem því líður er það hreint út sagt sorglegt að nýir þingmenn skuli temja sér orðfæri og tjá viðhorf sem hafa í för með sér hreina afturför á Alþingi. Framsóknarflokkurinn hefur kynnt sig fyrir og eftir síðustu kosningar sem Nýja Framsóknarflokkinn en nýir fulltrúar hans á þingi hafa einkum keppst við að bæta í stóryrðaflaum á þeim vettvangi.

Þó tekur steininn úr þegar formaður flokksins og fulltrúi hans í fjárlaganefnd gera sig hvað eftir annað bera að kvenfyrirlitningu með því að tala niður til kvenna á þingi. Sérstaka athygli mína hefur vakið yfirlæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þegar hann hefur átt orðastað við forsætisráðherra. Síðast hóf hann ræðu sína í lok 2. umræðu um Icesave með því að væna ráðherrann um skilnings- og þekkingarleysi og bar þó málefnaleg og rökföst ræða Jóhönnu Sigurðardóttur langt af stóryrðaræðu hans. Formaður Framsóknarflokksins gat sér þess þó til að ástæða þessa gæðamunar væri sú að Jóhanna hefði ekki samið ræðuna sjálf!

Ég er ekki í nokkrum vafa um að Sigmundur Davíð hefði aldrei vogað sér að viðhafa þessi ummæli ef ráðherra væri karlmaður. En formaður Framsóknarflokksins telur sig klárlega þess umkominn að tala með þessum hætti niður til konu sem hefur 30 ára reynslu af þingstörfum og þekkir málefni ríkisins betur en flestir aðrir. Höskuldur Þórhallsson bætti svo um betur í umræðunni og taldi ástæðuna fyrir því að forsætisráðherra væri ekki viðstödd umræðuna vera að hún væri örugglega heima að baka.

Ég hélt að karlremba af þessu tagi heyrði sögunni til. En sé „drengjaremba“ af þessu tagi það sem Nýi Framsóknarflokkurinn hefur helst fram að færa á Alþingi þá er um afturkipp í jafnréttismálum að ræða hér á landi. Það er alvarlegt umhugsunarefni fyrir alla jafnréttissinna.

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×