Ágúst Borgþór kennir blogg 8. janúar 2009 05:00 Ágúst Borgþór hefur stundum verið nefndur Bloggþór enda verið bloggandi frá árinu 2004. Hann kennir blogg- og greinaskrif hjá Mími. fréttablaðið/Anton
Hinn landskunni bloggari Ágúst Borgþór, Bloggþór, miðlar nú af reynslu sinni á námskeiði í bloggi. „Ég hef unnið lengi við auglýsingatextagerð og var beðinn um það fyrir nokkru að kenna fræðin á bak við slík skrif. Ég komst fljótlega í raun um það að ég er mun betri í að kenna heldur en að skrifa sjálfur,“ segir Ágúst Borgþór Sverrisson, einn þekktasti bloggari landsins. Ágúst klæðist brátt aftur í kennarafötin því hann hyggst kenna áhugasömum að blogga á sérstöku greina- og bloggnámskeiði sem Mímir stendur fyrir. Í námskeiðslýsingu stendur að markmiðið sé að geta skrifað frambærilegar blaðagreinar og að geta skrifað blogg sem fjölmiðlar vitna í. Auk þessa heldur Ágúst á sama tíma námskeið í smásagnagerð. Ágúst hefur verið bloggandi síðan 2004 og það næddi töluvert um síðu hans á fyrstu árunum. „Jú, þetta var frekar harður heimur fyrir mig í fyrstu, mér bárust óhefluð skilaboð, ég fékk marga upp á móti mér og maður var sjálfur full hvatvís,“ útskýrir Ágúst. Hann segist þó hafa setið á friðarstóli að undanförnu. „Allavega eru athugasemdirnar mun málefnalegri en áður.“ Þegar bloggarinn Ágúst byrjaði á sínum tíma var bloggið afmarkað af sérstökum hópi. Undanfarin tvö ár hefur hins vegar orðið sprenging í blogginu, ekki síst fyrir tilstuðlan bloggsíðna mbl.is og Vísir.is og nú síðast Eyjunnar. „Manni finnst nú oft eins og fólk sem er að blogga mætti aðeins velta skrifunum betur fyrir sér; stundum er nefnilega betra að blogga bara einu sinni í viku og hafa eitthvað að segja í stað þess að blogga og hafa ekkert fram að færa,“ segir Ágúst sem hyggst leggja á það ríka áherslu á námskeiðinu að hugsunin sé skýr og fókusinn verði á aðalatriðin. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Sjá meira