Heilbrigðisþjónusta fyrir alla? 31. mars 2009 04:00 L-listinn hefur haldið uppi þremur samfélagslegum grunngildum sem lúta að fæðuöryggi heimila og þjóðar, húsaskjóli og heilbrigðisþjónustu fyrir alla óháð efnahag. L-listinn hefur boðið fram lausn fyrir heimili sem komin eru í greiðsluerfiðleika, en hún lýtur að því að ríkið kaupi skuldir skuldsettra heimila að hluta eða að fullu að undangengnu greiðslumati, og leigi skuldurum íbúðina og veiti þeim jafnframt forkaupsrétt að íbúðinni að kreppunni lokinni. Ljóst er að atvinnulausir foreldrar með börn á framfæri búa við lítið sem ekkert fæðuöryggi, og vart má sjá að þær fjölskyldur eigi til hnífs og skeiðar. Ég vil varpa þeirri hugmynd til kjósenda að löggjafinn geri atvinnuleysisbætur friðhelgar gagnvart kröfuhöfum skuldara til að treysta fæðuöryggi heimila sem búa við atvinnuleysi. Ljóst er að fjölskyldur sem búa við atvinnuleysi búa einnig við þá ógn að hafa ekki efni á venjulegri læknaþjónustu eins og sérfræðiþjónustu, rannsóknum, aðgerðum og lyfjakúrum. Við Íslendingar búum raunverulega við þær aðstæður, að heilbrigðisþjónusta er ekki lengur aðgengileg fyrir alla, heldur aðeins þá sem starfandi eru. Sjálfur vil ég sjá alla heilbrigðisþjónustu og lyfseðilskyld lyf frí fyrir atvinnulaust fólk og börn þeirra. Aðstæður eru orðnar svo alvarlegar í íslensku samfélagi, að þessir grunnþættir og gildi samfélagsins eru ekki lengur þeir hornsteinar sem þjóðin hvílir á. Sem heilbrigðisstarfsmaður til margra ára hef ég rökstuddan grun um að ætla að það sé opinbert leyndarmál innan heilbrigðiskerfisins að stjórnmálamenn fái forgang í heilbrigðiskerfinu. Þá fara þeir efst á alla biðlista sem lúta að rannsóknum, meðferðum og aðgerðum. Svo koma þeir stjórnmálamenn sem njóta þessara forréttinda fyrir í fjölmiðlum rjóðir í vöngum og dásama íslenskt heilbrigðiskerfi. Ég vil varpa þeirri spurningu til heilbrigðisráðherra og landlæknis hvort þessi vinnubrögð séu enn gild innan heilbrigðiskerfisins, og vona um leið að svar þeirra verði sannleikanum samkvæmt. Höfundur skipar 2. sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir L-listann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
L-listinn hefur haldið uppi þremur samfélagslegum grunngildum sem lúta að fæðuöryggi heimila og þjóðar, húsaskjóli og heilbrigðisþjónustu fyrir alla óháð efnahag. L-listinn hefur boðið fram lausn fyrir heimili sem komin eru í greiðsluerfiðleika, en hún lýtur að því að ríkið kaupi skuldir skuldsettra heimila að hluta eða að fullu að undangengnu greiðslumati, og leigi skuldurum íbúðina og veiti þeim jafnframt forkaupsrétt að íbúðinni að kreppunni lokinni. Ljóst er að atvinnulausir foreldrar með börn á framfæri búa við lítið sem ekkert fæðuöryggi, og vart má sjá að þær fjölskyldur eigi til hnífs og skeiðar. Ég vil varpa þeirri hugmynd til kjósenda að löggjafinn geri atvinnuleysisbætur friðhelgar gagnvart kröfuhöfum skuldara til að treysta fæðuöryggi heimila sem búa við atvinnuleysi. Ljóst er að fjölskyldur sem búa við atvinnuleysi búa einnig við þá ógn að hafa ekki efni á venjulegri læknaþjónustu eins og sérfræðiþjónustu, rannsóknum, aðgerðum og lyfjakúrum. Við Íslendingar búum raunverulega við þær aðstæður, að heilbrigðisþjónusta er ekki lengur aðgengileg fyrir alla, heldur aðeins þá sem starfandi eru. Sjálfur vil ég sjá alla heilbrigðisþjónustu og lyfseðilskyld lyf frí fyrir atvinnulaust fólk og börn þeirra. Aðstæður eru orðnar svo alvarlegar í íslensku samfélagi, að þessir grunnþættir og gildi samfélagsins eru ekki lengur þeir hornsteinar sem þjóðin hvílir á. Sem heilbrigðisstarfsmaður til margra ára hef ég rökstuddan grun um að ætla að það sé opinbert leyndarmál innan heilbrigðiskerfisins að stjórnmálamenn fái forgang í heilbrigðiskerfinu. Þá fara þeir efst á alla biðlista sem lúta að rannsóknum, meðferðum og aðgerðum. Svo koma þeir stjórnmálamenn sem njóta þessara forréttinda fyrir í fjölmiðlum rjóðir í vöngum og dásama íslenskt heilbrigðiskerfi. Ég vil varpa þeirri spurningu til heilbrigðisráðherra og landlæknis hvort þessi vinnubrögð séu enn gild innan heilbrigðiskerfisins, og vona um leið að svar þeirra verði sannleikanum samkvæmt. Höfundur skipar 2. sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir L-listann.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar