Skoðun

Bréf til stjórnar ÍTR

Félagsmálakennarar í Árbæjarskóla skrifa um spurningakeppni.

Við viljum mótmæla harðlega þeirri ákvörðun ÍTR að fella niður spurningakeppni grunnskólanna, Nema hvað. Það er eitt að fella hana niður og annað að gera það þegar allur undirbúningur úti í skólunum er kominn á fulla ferð. Við hér í Árbænum erum búin að vera með forkeppni og velja hóp sem hefur verið mjög duglegur við æfingar. Það er grátlegt að þurfa að tilkynna krökkunum þessa ákvörðun þar sem þau hafa lagt á sig mikla vinnu.

Ef það á að viðhalda þeirri hefð sem skapast hefur í kringum keppnina og þeim metnaði sem nemendur hafa lagt í verkefnið þá teljum við það ranga ákvörðun að fella hana niður og kolranga að gera það á þessum tímapunkti, rétt rúmum mánuði fyrir venjubundinn keppnistíma.

Í fyrra var allt í einu ákveðið að sleppa ræðukeppninni en þá tóku framtakssamir einstaklingar sig til og héldu keppnina. Það var þeim skólum ómetanlegt sem tóku þátt í henni. Hvað verður næst? Getum við búist við að hætt verði við Skrekk 2010 í október á næsta ári?

Við höfum skilning á að það þurfi að spara í þessu árferði en að senda þetta bréf núna rétt fyrir jól er að okkar mati lítilsvirðing gagnvart nemendum grunnskólanna í Reykjavík.

Við skorum á ÍTR að endurskoða þessa ákvörðun.

Páll Guðmundsson, Ragnar Hilmarsson, Margrét Sara Guðjónsdóttir, Ingunn Björg Arnardóttir, Þór Jóhannesson.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×