Einmanaleg framtíðarsýn Hollywood 1. október 2009 04:00 Harrison Ford, Will Smith, Tom Cruise og Bruce Willis hafa allir leikið menn sem er á einhvern hátt uppsigað við framtíðina eða þjást af einmanaleika. Framtíðarsýn Hollywood virðist vera sú að mannfólkið eigi smám saman eftir að draga sig inn í skel sína og forðast samskipti við hvert annað.
Hinar stóru karlkyns Hollywood-stjörnur virðast þurfa að ganga í gegnum ákveðna eldraun á sínum ferli; að leika einmana karla í framtíðinni og kljást við ógnir þess sem koma skal. Framtíðin er kvikmyndagerðarmönnum alltaf hugleikin enda geta kvikmyndir stundum virkað líkt og spámenn forðum daga. Framtíðin hefur oft verið björt, full af tækninýjungum og fjöri eins og í Back to the Future II. Þá var hægt að láta sig dreyma um flug-hjólabretti, jakka sem löguðu sig að stærð og svona mætti lengi telja. Aðrar framtíðarmyndir hafa reynt að skapa trúverðuga heimsmynd þar sem áhersla er lögð á miklar hugarfarsbreytingar, baráttan við hlýnun jarðar virðist hafa tekist, bílar eru keyrðir áfram af vetni, virðast svífa yfir vegum landsins og stjórnvöld leggja sitt af mörkum til að fá fólk til að láta af reykingum (Bruce Willis í Fifth Element). Og svo eru það leikstjórar og handritshöfundar sem halda að lífið í framtíðinni verði einmanalegt; að vélmenni muni smám saman taka yfir hefðbundin störf, fólk hverfi inn í heim sýndarveruleika og eiginleg samskipti manna á milli verði af skornum skammti. Skemmst er að minnast Stallone-myndarinnar Demolition Man þar sem leikarinn málhalti hugðist eiga notalega stund með Söndru Bullock; hún dró fram einhvern sýndarveruleikahjálm og útskýrði fyrir Stallone að svona gerðust kaupin á eyrinni núna, ekki einhver líkamsvessaskipti eins og í gamla daga. Ekki var nú ástandið skárra í Will Smith-myndinni I, Robot, þar sem mannfólkið þurfti varla að dýfa hendinni ofan í kalt vatn. Enda hafði Will, fulltrúi gamla tímans, sitthvað við þessa róbóta að athuga. Rick Deckard er einnig ágætis dæmi um einmana karl í framtíðinni. Deckard drap vélmenni í Blade Runner og virtist eiga erfitt með að sjá tilganginn í sínu lífi. Hann var nánast viljalaust verkfæri sem lifði eingöngu fyrir morgundaginn. Tom Cruise í Minority Report er annað sönnunargagn. Sá reynir að klófesta morðingja og glæpamenn sem hafa ekki framið sinn glæp en þjáist af einsemd og hellir sér ofan í eiturlyfjaneyslu á flótta sínum undan raunveruleikanum. Og svo virðist sem kvikmyndagerðarmenn hræðist það mest að mannkynið muni loka sig af og láta vélarnar um skítadjobbin. Kvikmyndin Surrogates hefur kannski ekki farið hátt í fréttum en myndin hefur fengið prýðisgóða dóma í bandarísku pressunni. Hún skartar Bruce Willis í aðalhlutverki og gerist í náinni framtíð. Mennirnir hafa skilið hver við annan, fylgjast bara með fullkomnu vélmennunum sínum vinna sína vinnu og fara varla út úr húsi. Þetta hljómar auðvitað allt saman kunnuglega og þarf varla að koma neinum á óvart að Willis gamli er fenginn til að rannsaka morð sem bilað vélmenni er grunað um að hafa framið. Og að honum þyki ekki mikið til nútíðarinnar (framtíðarinnar) koma.
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Sjá meira