Kærastinn hæfastur? 12. mars 2009 04:00 Stúdentaráð Háskóla Íslands réð sér framkvæmdarstjóra á dögunum. Samkvæmt lögum ráðsins skal framkvæmdarstjóri vera faglega ráðinn. Um er að ræða fullt starf sem felst í yfirliti með bókhaldi og rekstri skrifstofu SHÍ. Um stöðuna sóttu að þessu sinni þrír umsækjendur A, B og C. Tveir þessara umsækjanda, A og B, eru Stúdentaráðsliðar fyrir Vöku, sem hefur nú meirihluta í ráðinu. C er óháður. Umsækjandi A er í BA námi við HÍ. Hann sótti um stöðu framkvæmdastjóra SHÍ fyrir ári síðan en var ekki ráðinn. Vaka hótaði þá að kæra þá ráðningu á grundvelli þess að gengið hefði verið fram hjá hæfasta umsækjandanum. Nú var þó komið annað hljóð í strokkinn, því þrátt fyrir að Vaka hafi talið A hæfasta umsækjandann í fyrra var hann ekki ráðinn í ár. Umsækjandi C tilheyrir engri fylkingu innan Stúdentaráðs, hefur lokið BA gráðu og er í meistaranámi í mannauðsstjórnun við skólann. C hefur starfað undanfarin tvö ár sem framkvæmdarstjóri Stúdentaráðs Kennaraháskóla Íslands, sem nú hefur sameinast HÍ. Umsækjandi C var ekki ráðinn í starfið. Umsækjandi B er í BA námi við HÍ og hefur setið í stjórn nemendafélags við skólann sem og í stjórn Stúdentasjóðs. Hann er einnig kærasti núverandi formanns Stúdentaráðs fyrir hönd Vöku. Umsækjandi B var ráðinn framkvæmdastjóri SHÍ. Stúdentar við HÍ eiga heimtingu á að vita hvað lá því til grundvallar að B var ráðinn í starfið. Hvað réð því að hann var metinn hæfari en umsækjandi A, sem Vaka taldi hæfasta umsækjandann í fyrra, og umsækjanda C, sem býr yfir sambærilegri starfsreynslu og þeirri sem sóst var eftir, auk meiri menntunar en hinir umsækjendurnir? Engin augljós málefnaleg ástæða er fyrir því að C var ekki ráðinn í starfið og kalla ég eftir þeirri ástæðu. Að framangreindu ber ekki á öðru en að meirihluti stjórnar Stúdentaráðs hafa brotið eigin lög, sýnt hæfum umsækjendum lítilsvirðingu og orðið sjálfum sér þar með til mikillar minnkunar. Höfundur situr í stjórn SHÍ fyrir Röskvu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Stúdentaráð Háskóla Íslands réð sér framkvæmdarstjóra á dögunum. Samkvæmt lögum ráðsins skal framkvæmdarstjóri vera faglega ráðinn. Um er að ræða fullt starf sem felst í yfirliti með bókhaldi og rekstri skrifstofu SHÍ. Um stöðuna sóttu að þessu sinni þrír umsækjendur A, B og C. Tveir þessara umsækjanda, A og B, eru Stúdentaráðsliðar fyrir Vöku, sem hefur nú meirihluta í ráðinu. C er óháður. Umsækjandi A er í BA námi við HÍ. Hann sótti um stöðu framkvæmdastjóra SHÍ fyrir ári síðan en var ekki ráðinn. Vaka hótaði þá að kæra þá ráðningu á grundvelli þess að gengið hefði verið fram hjá hæfasta umsækjandanum. Nú var þó komið annað hljóð í strokkinn, því þrátt fyrir að Vaka hafi talið A hæfasta umsækjandann í fyrra var hann ekki ráðinn í ár. Umsækjandi C tilheyrir engri fylkingu innan Stúdentaráðs, hefur lokið BA gráðu og er í meistaranámi í mannauðsstjórnun við skólann. C hefur starfað undanfarin tvö ár sem framkvæmdarstjóri Stúdentaráðs Kennaraháskóla Íslands, sem nú hefur sameinast HÍ. Umsækjandi C var ekki ráðinn í starfið. Umsækjandi B er í BA námi við HÍ og hefur setið í stjórn nemendafélags við skólann sem og í stjórn Stúdentasjóðs. Hann er einnig kærasti núverandi formanns Stúdentaráðs fyrir hönd Vöku. Umsækjandi B var ráðinn framkvæmdastjóri SHÍ. Stúdentar við HÍ eiga heimtingu á að vita hvað lá því til grundvallar að B var ráðinn í starfið. Hvað réð því að hann var metinn hæfari en umsækjandi A, sem Vaka taldi hæfasta umsækjandann í fyrra, og umsækjanda C, sem býr yfir sambærilegri starfsreynslu og þeirri sem sóst var eftir, auk meiri menntunar en hinir umsækjendurnir? Engin augljós málefnaleg ástæða er fyrir því að C var ekki ráðinn í starfið og kalla ég eftir þeirri ástæðu. Að framangreindu ber ekki á öðru en að meirihluti stjórnar Stúdentaráðs hafa brotið eigin lög, sýnt hæfum umsækjendum lítilsvirðingu og orðið sjálfum sér þar með til mikillar minnkunar. Höfundur situr í stjórn SHÍ fyrir Röskvu.
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar