Viðskipti innlent

Norræni fjárfestingar­bankinn

Johnny Åkerholm Forstjóri Norræna fjárfestingarbankans. Mynd/NIB
Johnny Åkerholm Forstjóri Norræna fjárfestingarbankans. Mynd/NIB

„Það er hæpið að líkja Norræna fjárfestingarbankanum við opinbera sjóði sem fjárfesta í eignum,“ segir Johnny Åkerholm, forstjóri Norræna fjárfestingarbankans.

Hann bendir á að bankinn, sem er í eigu norrænna ríkja og Eystrasaltsríkja, sé fyrst og fremst lánastofnun.

Åkerholm segir samt sem áður að órói á mörkuðum hafi haft í för með sér mikla eftirspurn eftir lánum hjá bankanum, og ekki síður hafi menn keppst við að lána bankanum fé.

„Við fjármögnum okkur með lánum og útgáfu skuldabréfa á fjármálamörkuðum um allan heim,“ segir Åkerholm. „Á erfiðum tímum á mörkuðum þá höfum við hagnast á góðu orðspori, enda með hæstu lánshæfis­einkunn. Því höfum við getað fengið fé á góðum kjörum.“

Bankinn safnaði í fyrra 4,3 milljörðum evra, eða sem nemur ríflega 500 milljörðum íslenskra króna. Það er hið mesta sem bankinn hefur fengið á einu ári.

Á sama tíma varð sprenging í útlánum hjá sjóðnum. „Við greiddum 2,4 milljarða evra út í lánum í fyrra, sem er hið mesta í sögu sjóðsins.“

Åkerholm segir að það sem af er ári hafi ekkert lát orðið á eftir­spurn eftir lánum hjá sjóðnum.

Hann bætir því við að bankinn láni fyrst og fremst til einka­fyrirtækja í ríkjunum sem eiga bankann. Eftirspurnin sé ekki síst þaðan.

Fram kom í fréttatilkynningu með árseikningi bankans nú í mars að bankinn sinni einkum langtímalánveitingum til orkuverkefna, umhverfismála og samgangna, auk þess að efla félagslega innviði á svæðum við Eystrasalt.

Um áramót átti sjóðurinn útistandandi lán í 38 löndum. Þar á meðal hefur verið lánað til verkefna í Kína, Rússlandi og Brasilíu.

Þess má geta að Íslendingar eiga 0,9 prósent í Norræna fjárfestingarbankanum. Hins vegar hafa um átta prósent af heildar­útlánum sjóðsins ratað hingað til lands.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×