Þakkaði Færeyingum fyrir aðstoðina 18. nóvember 2008 14:43 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jørgen Niclasen utanríkisráðherra Færeyinga.
Færeyingar sýndu Íslendingum einstakan vinarhug þegar þeir ákváðu að lána 300 milljónir danskra króna í gjaldeyrisvaraforða. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nýtti tækifærið og þakkaði Jørgen Niclasen, utanríkisráðherra Færeyja fyrir aðstoðina, á blaðamannafundi sem þau héldu í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Ingibjörg átti fund með ráðherranum í dag, þar sem rætt var um fríverslunarsamning milli Færeyja og Íslands, svokallaðan Hoyvíkursamning, sem Ingibjörg sagði að tæki meðal annars til frjálsra viðskipta með landbúnaðarvörur. Þá var rætt um samstarf á sviði heilbrigðismála, rætt um loðnuveiðar Færeyinga við Íslandsstrendur og Hatton Rockall málin þar sem Íslendingar og Færeyingar eiga sameiginlega hagsmuni í deilu við Breta og Íra. Einnig var rætt um áhuga Færeyinga á að gerast aðilar að EFTA. Niclasen gerði að umtalsefni þá löngu vináttu sem hefði ríkt á meðal þjóðanna. Aðspurður sagðist hann telja að Íslendingar gætu lært af þeirri efnahagskreppu sem Færeyingar lentu í við upphaf 10. áratugar síðustu aldar. Kreppan þar hefði þó verið ólík að því leytinu til að íslenska bankakerfið hefði hrunið mun hraðar en það færeyska gerði á sínum tíma. Hann sagði að Færeyingar hefðu farið langt á þeirri von og trú að þeir myndu standa sig. Þá trú mættu Íslendingar aldrei missa. Lánið til Íslendinga nemur 300 milljónum danskra króna, en Niclasen sagði að landsframleiðsla Færeyinga næmi 12 milljörðum króna.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira