Kvika á ferð undir Upptyppingum 14. maí 2008 18:46
Niðurstöður rannsóknarleiðangurs jarðvísindamanna að Upptyppingum og Álftadalsdyngju í síðasta mánuði staðfesta svo ekki verður um villst að þar undir er kvika á uppleið.Það var í febrúar í fyrra sem vísindamenn tóku fyrst eftir óvenjulegum atburðum í jarðskorpunni norður af Vatnajökli, fjarri mannabyggðum, þegar jarðskjálftavirkni hófst suður af Herðubreið við Upptyppinga. Skjálftarnir hafa síðan færst til norðausturs og mælast nú undir Álftadalsdyngju. Það sem vakið hefur sérstaka athygli er að skjálftarnir hafa verið að færast ofar upp í jarðskorpuna og nær yfirborði. Þannig mældust þeir fyrst á um átján kílómetra dýpi en eru nú á á ellefu kílómetra dýpi. Jarðvísindamenn fóru í síðasta mánuði á svæðið með þyrlu Landhelgisgæslunnar til að rannsaka landris með því að mæla færslur á GPS-mælipunktum. Halldór Geirsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir niðurstöðurnar staðfesta að þarna sé kvika á ferð.Halldór segir allt eins líklegt að þessi þróun hætti og kvikan storkni áður en hún nái yfirborði. Ef þarna verði eldgos sé líklegast að það verði dyngjugos. Hann treysir sér ekki til að tímasetja hugsanlegt eldgos, það gæti hafist á morgun, eftir ár eða áratugi.
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Fleiri fréttir Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Sjá meira