Körfubolti

Mikilvægur sigur Þórs á Stjörnunni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dimitar Karadzovski skoraði 23 stig á Akureyri í dag en það dugði Stjörnumönnum ekki til sigurs.
Dimitar Karadzovski skoraði 23 stig á Akureyri í dag en það dugði Stjörnumönnum ekki til sigurs. Mynd/E. Stefán

Þór vann í dag góðan sigur á Stjörnunni á Akureyri, 89-85, eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 42-42.

Þórsarar náðu eins stigs forystu í þriðja leikhluta og náðu svo að innbyrða sigurinn að lokum.

Cedric Isom var stigahæstur Þórsara með 31 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst. Óðinn Ásgeirsson kom næstur með 24 stig.

Hjá Stjörnunni voru tveir menn markahæstir með 23 stig, þeir Jovan Zdravevski og Dimitar Karadzovski.

Þór er nú í áttunda sæti deildarinnar með tólf stig en Stjarnan í því níunda með tíu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×