Fangelsuð eftir fund með SUS-urum Andri Ólafsson skrifar 4. febrúar 2008 17:05
Fulltrúi Íslands á samráðsfundi ÖSE á fimmtudaginn síðasta gerði athugasemdir við handtökur á hópi ungmenni í Hvíta-Rússlandi fyrir skömmu. Athugasemdin var gerð eftir að þrír Íslendingar létu utanríkisráðuneytið vita af grun sínum um að handtökurnar tengdust heimsókn Íslendinganna til Hvíta-Rússlands nýlega. Íslendingarnir sem um ræðir voru fulltrúar Sambands ungra sjálfstæðismanna á þingi ungra hægri manna í landinu. Á meðal þeirra voru Bolli Thoroddsen, formaður ÍTR, Árni Helgason framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna, og Páll Heimisson. Þeir Árni, Bolli og Páll fóru á fund Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra eftir að í ljós kom að hópur ungmenna sem verið hafði íslenska hópnum innan handar í heimsókninni hafði verið handtekinn daginn eftir að Íslendingarnir yfirgáfu landið. Íslenski hópurinn hafði áhyggjur af því að handtökurnar tengdust veru sinni í landinu. Við nánari eftirgrennslan kom svo í ljós að réttað hafði verið yfir ungmennunum og þau dæmd eftir hraðréttahöld fyrir þær litlu sakir að hafa ,,blótað á almannafæri." Ekki bætti úr skák þegar í ljós kom að ungmennin, sem eru á aldrinum 18-20 ára, voru látin afplána 15 daga fangelsisdóm við afar vondar aðstæður í fangelsi þar í landi. Eftir fund utanríkisráðherra með Árna, Bolla og Páli gerði ráðuneytið ráðstafanir til að kanna hvort ábendingar þeirra væru réttar. Þegar í ljós kom að allt benti til þess að svo væri var ákvörðun tekin um að taka málið upp á vikulegum samráðfundi ÖSE í Vínarborg. Fundurinn var á fimmtudag. Á honum gerði íslenski fulltrúinn þær athugasemdir að lýðræðislegur réttur ungmennanna til fundarhalda og skoðanaskipta hefði ekki verið virtur. Þá sagði íslenski fulltrúinn að hann gæti ekki séð hvað þau hefðu gert af sér til að verskulda fangelsisdóm. Þá lýsti hann einnig áhyggjum að velferð ungmennanna þar sem oft hefði komið fram að aðbúnaður í fangelsum í Hvíta -Rússlandi væri ekki viðunandi. Fulltrúi Hvít-Rússa á fundinum sagðist muna skýra yfirvöldum frá þessu en sagði ungmennin hafa hagað sér ófriðlega og verið ósamvinnuþýð við lögreglu. Hann upplýsti svo síðar að ungmennin hefðu verið látin laus sama dag og athugasemdirnar voru gerðar. Aðrir fulltrúar á fundinum lýstu yfir ánægju sinni með það að Ísland hefði tekið málið upp enda eitt af aðalhlutverkum ÖSE að fylgjast með því að mannréttindi séu virt í aðildarlöndum. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir að málinu sé lokið að hálfu ráðuneytisins, athugasemdum íslenskra yfirvalda hafi verið komið á framfæri og ungmennin hafi verið látin laus. Árni Helgason, einn þremenninganna sem gekk á fund á ráðherra, segist hafa fengið skjót of góð viðbrögð við erindinu og segir ánægjulegt að hafa fengið svo góðar viðtökur. Hann heyrði í einum félaga sínum sem fangelsaður var skömmu eftir að hann var látin laus. ,,Hann var afskaplega þakklátur fyrir að við skulum hafa látið okkur þetta mál varða," segir Árni og bætir því við að þótt þessi sigur hafi unnist sé alls ekki víst að lokakaflinn hafi verið skrifaður. ,,Ungt fólk sem kemst í ónáð yfirvalda í Hvíta-Rússlandi á til dæmis oft í erfiðleikum með að mennta sig, þeir sem mótmæla er oft vísað úr skóla," segir Árni og áréttar að þess vegna sé mikilvægt að halda áfram að fylgjast með mannréttindamálum þar í landi og víðar.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira