Enski boltinn

Tottenham: Gardner út - Gilberto inn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gilberto í leik með Herthu Berlín í síðasta mánuði.
Gilberto í leik með Herthu Berlín í síðasta mánuði. Nordic Photos / Bongarts

Nú í kvöld var staðfest að Anthony Gardner var lánaður til Everton frá Tottenham sem festi kaup á Brasilíumanninum Gilberto, leikmanni Herthu Berlín.

Lánssamningur Gardner gildir út leiktíðina en hann hefur leikið með Tottenham undanfarin átta ár. Á þeim tíma lék hann 114 leiki með félaginu og skoraði í þeim tvö mörk.

Gilberto skal ekki rugla við Gilberto Silva hjá Arsenal þó sá fyrrnefndi heiti fullu nafni Gilberto da Silva Melo. Báðir eru þeir 31 árs gamlir en Gilberto fyrrnefndi er nú í fyrsta skipti að semja við enskt félag.

Hann hóf feril sinn í heimalandi sínu en var keyptur til Inter árið 1999. Þar kom hann aðeins við sögu í tveimur leikjum og fór aftur til Brasilíu eftir leiktíðina.

Gilberto samdi svo við Herthu Berlín árið 2004 og spilaði 86 leiki með liðinu og skoraði í þeim þrettán mörk. Hann er vinstri bakvörður og á að baki 22 landsleiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×