Mikilvægur dagur á EM í handbolta Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. janúar 2008 13:49 Munu Nikola Karabatic og félagar fagna sigri gegn Spánverjum í dag? Nordic Photos / AFP
Það er spennandi dagur framundan á EM í handbolta og tekur Vísir hér saman hvað sé undir hjá liðunum tólf sem spila í dag. Milliriðill 1 15.15 Slóvenía - Svartfjallaland Þarna mætast liðin sem eru í neðstu sætum 1. milliriðils. Bæði lið eru án stiga og eiga af þeim sökum afskaplega veika von um að komast í leikinn um 5.-6. sætið, hvað þá undanúrslitin. En að sama skapi er þetta besta tækifæri beggja liða til að ná sér í stig í milliriðlinum og auka þar með líkurnar að tryggja sér sæti í undankeppni Ólympíuleikanna, þó það sé vissulega borin von. Svartfellingar hafa reyndar ekki enn sem komið er unnið leik á mótinu en liðið fór áfram á jafnteflinu fræga við Rússa sem á endanum felldi gamla stórveldið. 17.15 Króatía - Danmörk Þetta verður án efa einn af mest spennandi leikjum dagsins. Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Dana, segir að það verði nánast vonlaust fyrir sína menn að komast í undanúrslitin ef þeir tapi þessum leik. Það er því allt undir hjá Dönum. Þeir ætluðu sér sigur á þessu móti og verður þetta fyrsta alvöru prófraunin á liðið eftir að það tapaði fyrir Noregi á fyrsta keppnisdegi mótsins. Vinni Króatar í dag verður liðið komið sex stig, fjórum stigum á undan Dönum. Þar með verða Danir að treysta á að úrslit annnarra leikja verði þeim hagstæð.19.15 Pólland - Noregur Pólverjar eru í svipaðri stöðu og Danir. Þeir töpuðu fyrir Króötum í riðlakeppninni og því með tvö stig í milliriðlinum. Norðmenn eru hins vegar með fullt hús stiga. Ef Noregur og Króatía verða með sex stig að loknum þessum keppnisdegi er nánast ekkert sem getur komið í veg fyrir að liðin komist ekki áfram í undanúrslitin. Bæði lið þyrftu því að tapa leikjum sínum gegn Slóveníu og Svartfjallalandi og það helst nokkuð stórt. Pólverjar hafa þegar hafið sálfræðihernað með því að gagnrýna Norðmenn fyrir að standa illa að mótshaldinu í Noregi.Milliriðill 2 15.20 Þýskaland - Ísland Ef Þjóðverjar ætla sér að komast í undanúrslit verða þeir að vinna Íslendinga í dag. Ef Íslendingar ætla sér meiri og stærri hluti en strákarnir hafa sýnt hingað til verða þeir að vinna Þjóðverja. Það er því allt undir í þessum leik fyrir bæði lið. 17.30 Frakkland - Spánn Án efa einn athyglisverðasti leikur dagsins því þarna mætast tvö gríðarlega sterk lið. Frakkar sluppu naumlega við niðurlægingu í fyrsta leik gegn Slóvökum en Spánverjar voru niðurlægðir af Ungverjum á fyrsta keppnisdegi. Síðan þá hafa þessar þjóðir verið á beinu brautinni og unnið sína leiki örugglega. Spánverjar unnu til að mynda heimsmeistara Þýskalands með átta marka mun í lokaumferð riðlakeppninnar. Frakkar rúlluðu yfir bæði Svíþjóð og Ísland eins og allir ættu að vita og sýndu að þeir eru til alls líklegir á mótinu. Vinni Frakkar eru þeir komnir með annan fótinn í undanúrslitin en ef Spánverjar vinna má búast við því að riðillinn verði galopinn.19.30 Ungverjaland - Svíþjóð Ungverjar þurfa að sýna og sanna að sigurinn á Spáni á fyrsta keppnisdegi er engin tilviljun. Þetta er einnig algjör lykilleikur í baráttu beggja liða um að komast í undankeppni Ólympíuleikanna. Svíar eru að keppa á sínu fyrsta stórmóti í þrjú ár og gáfu tóninn með öruggum sigri á Íslandi á fyrsta keppnisdegi. Þeir þurfa líka að sýna mátt sinn og megin og sýna öðrum þjóðum að þeir séu jafn sterkir og þeir sjálfir vilja meina.
Mest lesið Uppgjörið: Breiðablik - Athlone Town 3-1 | Tvö mörk á tveimur mínútum og Blikar unnu Fótbolti Gætt af Interpol og sagt að fela fána fyrir leikinn við Ísland Körfubolti Tveir nýliðar í landsliðshópnum Fótbolti Ástin sögð ástæða þess að Sancho vilji ekki Roma Fótbolti Svona var EM-Pallborðið Körfubolti Arnar kynnti fyrsta hópinn í undankeppni HM Fótbolti Hæsti fótboltamaður í heimi Fótbolti EM í dag: Ætli Katowice sé enn versta borg í heimi og leðurjakki í hitabylgju Körfubolti Segir Daníel ekki líkan pabba sem leikmanni en hafi Guðjohnsen-svægið Fótbolti Rio grínaðist með söngva Liverpool fólksins Enski boltinn Fleiri fréttir Ágúst strax kominn með titil hjá Álaborg Íslenska tríóið grátlega nálægt titli Gat ekki skammað frænda því hann þurfti að fara upp á spítala Stjarnan er meistari meistaranna „Magnað að við séum enn að leita í vinskap hvors annars“ Með krabbamein í brjósti en hættir ekki að spila „Upplifi þetta mál sem fjölskylduharmleik“ Misstu Egypta fram úr sér í seinni hálfleik ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Unnu Ungverja og spila við heimamenn um fimmta sætið á HM Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Sárt tap gegn Dönum á HM Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sjá meira