Lífið

Ebay neitar að selja yahoo.is

Uppboðssíðan eBay tók lénið yahoo.is, sem Garðar Arnarson kerfisstjóri hugðist selja þar, úr sölu vegna gruns um að það bryti í bága við höfundarréttarlög. Garðar sagði í samtali við Vísi að hann telji ekki að salan stangist á við höfundarréttarlög. Hann segir að yahoo sé fullgilt enskt orð, og að þó að Yahoo.com sé skrásett vörumerki, gildi það sama ekki um yahoo.is.

Upphafsgjald lénsins á eBay var 100.000 dollarar, eða um 6,2 milljónir króna. Þegar lénið var tekið úr sölu höfðu einhver tilboð borist í það. Þegar eBay tók lénið úr sölu hafði það hinsvegar samband við þá sem buðu til að láta þá vita að hætt hafi verið við söluna. Garðar hyggst því að leita til lögfræðinga til að kanna hvort eBay sé stætt á því að taka lénið úr sölu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.