Erlent

Heimildarmynd um Madeleine í bígerð

Foreldrar Madeleine McCann, stúlkunnar sem talið er að barnaníðingar hafi rænt, eiga nú í viðræðum við kvikmyndaframleiðendur um gerð heimildarmyndar um málið.

Viðræður þessar eru enn á frumstigi og ekki liggur ljóst fyrir hvort um verði að ræða sjónvarpsþátt eða kvikmynd. Madeleine var rænt í Portúgal í maí á síðasta ári og síðasta haust fengu foreldrarnir stöðu grunaðra hjá portúgölsku lögreglunni. Hópur einkaspæjara á vegum foreldranna leitar nú að Madeleine.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×