Fótbolti

Skotar fá ekki að færa Noregsleikinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik Skotlands og Noregs í haust en hér brennir Chris Iwelumo af fyrir opnu marki Norðmanna.
Úr leik Skotlands og Noregs í haust en hér brennir Chris Iwelumo af fyrir opnu marki Norðmanna. Nordic Photos / AFP

Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hefur hafnað bón skoska knattspyrnusambandsins um að færa leik Skotlands og Noregs sem fer fram í ágúst næstkomandi.

Beiðninni var hafnað og mun því leikurinn fara fram þann 12. ágúst. Skotar vildu færa leikinn þar sem undankeppni Meistaradeildar Evrópu er í fullum gangi á svipuðum tíma.

„Þetta eru ákveðin vonbrigði fyrir okkur en nú er alla vega búið að fá þetta mál á hreint. Stuðningsmenn landsliðsins geta því tekið viðeigandi ráðstafanir," sagði Gordon Smith, framkvæmdarstjóri skoska knattspyrnusambandsins.

Skotland og Noregur eru í sama riðli og Ísland í undankeppni HM 2010 en Skotar eru í öðru sæti riðilsins með fjögur stig, rétt eins og Ísland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×