Á bara að spila fyrri hálfleikinn? Tryggvi Gunnarsson skrifar 12. desember 2008 06:00 Undanfarna mánuði hafa lögregluembættin á Norðurlandi verið í átaki vegna fíkniefna. Aldrei áður hafa komið upp fleiri fíkniefnamál og ekki hefur verið lagt hald á meira efni en í þessu átaki. Hafa lögreglumenn gert víðreist svo sem í skólum, heimavistum, pósthúsum, flugvöllum, heimilum og víðar. Það má því með sanni segja að átakið er að skila tilteknum árangri. Ég mun seint hætta að taka hattinn ofan fyrir þessum lögregluembættum sem leggja allt sitt að veði að halda þessum vágesti frá framtíð landsins. Með þessum orðum er ég ekki að segja að unga fólkið okkar sé eingöngu að nota fíkniefni, það er langur vegur frá. Nú berast þær fréttir að líklega mun þetta átak leggjast af um áramót. ástæðan er talin vera skortur á fjármagni. Ég sem gamall keppnismaður í knattspyrnu vill líkja þessu við að nú sé fyrri hálfleik að ljúka og staðan sé 5-0 fyrir okkur. En í upphafi seinni hálfleiks taka þjálfaranir til sinna ráða og skipta út öllu liðinu og setja inn varaliðið og vona það besta þ.e.a.s. halda góðri stöðu. Undantekningalaust gengur það ekki upp, andstæðingunum vex ásmegin og rétta stöðu sína af áður en leik lýkur og jafnvel stela sigrinum í lokin. Þetta má ekki gerast, við verðum að spila með okkar besta lið allan tímann. Það vekur hjá mér óhug ef átakinu verður ekki haldið áfram, því langar mig að spyrja ykkur, hvað kostar svona átak? Er höggvið stórt skarð í fjárhagsáætlun ráðuneytisins með svona átaki? Hvað með framhaldið? Höfundur er sölumaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Sjá meira
Undanfarna mánuði hafa lögregluembættin á Norðurlandi verið í átaki vegna fíkniefna. Aldrei áður hafa komið upp fleiri fíkniefnamál og ekki hefur verið lagt hald á meira efni en í þessu átaki. Hafa lögreglumenn gert víðreist svo sem í skólum, heimavistum, pósthúsum, flugvöllum, heimilum og víðar. Það má því með sanni segja að átakið er að skila tilteknum árangri. Ég mun seint hætta að taka hattinn ofan fyrir þessum lögregluembættum sem leggja allt sitt að veði að halda þessum vágesti frá framtíð landsins. Með þessum orðum er ég ekki að segja að unga fólkið okkar sé eingöngu að nota fíkniefni, það er langur vegur frá. Nú berast þær fréttir að líklega mun þetta átak leggjast af um áramót. ástæðan er talin vera skortur á fjármagni. Ég sem gamall keppnismaður í knattspyrnu vill líkja þessu við að nú sé fyrri hálfleik að ljúka og staðan sé 5-0 fyrir okkur. En í upphafi seinni hálfleiks taka þjálfaranir til sinna ráða og skipta út öllu liðinu og setja inn varaliðið og vona það besta þ.e.a.s. halda góðri stöðu. Undantekningalaust gengur það ekki upp, andstæðingunum vex ásmegin og rétta stöðu sína af áður en leik lýkur og jafnvel stela sigrinum í lokin. Þetta má ekki gerast, við verðum að spila með okkar besta lið allan tímann. Það vekur hjá mér óhug ef átakinu verður ekki haldið áfram, því langar mig að spyrja ykkur, hvað kostar svona átak? Er höggvið stórt skarð í fjárhagsáætlun ráðuneytisins með svona átaki? Hvað með framhaldið? Höfundur er sölumaður.
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar