Viðskipti innlent

Icelandic USA selur verksmiðjuhúsnæði í Cambridge

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandic Group.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandic Group. MYND/GVA

Icelandic USA, félag sem er í eigu Icelandic Group, hefur selt verksmiðjuhúsnæði sitt og tæki í Cambridge í Maryland í Bandaríkjunum.

Í tilkynningu frá Icelandic Group til Kauphallarinnar segir að engin starfsemi hafi verið í húsnæðinu síðan í júní í fyrra en þá var öll framleiðsla félagsins flutt á einn stað í Newport News í Virginíu.

Lokunin í Cambridge var lokahnykkurinn í sameiningu Icelandic USA og Samband of Iceland sem hófst á árinu 2005. Verksmiðjan í Newport News er hins vegar sögð nýrri og vel tæknilega búin til að þjóna núverandi viðskiptavinum Icelandic USA og framtíðarvexti.

Í tilkynningunni segir enn fremur að dótturfyrirtæki Icelandic USA, Ocean to Ocean, hafi selt allar birgðir sínar í Bandaríkjunum og vörumerki tengd þeim birgðum til Singleton Fisheries undir nafninu Meridian. Sölurnar hafa óveruleg áhrif á rekstur og efnahag Icelandic Group.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×