Bandaríkjamaður á besta aldri gefur lim sinn á Reðursafnið 26. júní 2008 14:25 Sigurður Hjartarson eigandi Reðursafnins sagðist himinlifandi með Elmo í samtali við Vísi fyrir skömmu.
52 ára gamall kaupsýslumaður frá Colorado í Bandaríkjunum mun gangast undir aðgerð á næstunni. Þar verður limur hans fjarlægður og ánafnaður Reðursafninu á Húsavík í fullri reisn ásamt eistum. Vísir hefur áður sagt frá manninum sem vill láta kalla sig Tom Mitchell. Hann er þrígiftur, á nokkur börn og segist ekki hafa nein not fyrir liminn lengur. Hann vill nú einbeita sér fullkomlega að starfsframanum og verður fyrsti lifandi karlmaðurinn í heiminum til þess að gefa lim sinn á reðursafn. Vísir sló á þráðinn og heyrði í honum hljóðið, rétt fyrir aðgerð. „Ég hef hugsað um þetta lengi og nú hef ég ákveðið að láta verða að því. Ég vil að þetta sé gert rétt og þegar maður vill að eitthvað sé gert rétt verður maður að gera það sjálfur," segir Tom Mitchell en hann kallar lim sinn Elmo. Hann rakst á Reðursafnið á Húsavík þegar hann var að flakka á internetinu og komst í samband við Sigurð Hjartarson eiganda safnsins með tölvupósti. „Þetta var mín hugmynd en ég hafði heyrt af eldri manni á Íslandi sem hafði ánafnað lim sinn safninu. Þá spurði ég hvort Siggi væri ekki áhugasamur um að fá lim frá öðru landi og hann svaraði því játandi," segir Tom. Tom hefur ekki komið á Reðursafnið en hyggst heimsækja safnið þegar hann gefur lim sinn. „Okkur Elmo hlakkar mjög mikið til að koma í heimsókn." Aðspurður hvort hann hafi leitt hugann að því að hann muni sjá eftir gjöfinni þegar árin líða segir Tom að svo verði líklega ekki. „Þetta er eitthvað sem mig langar að gera og ég hef hugsað lengi um þetta. Ástæðurnar eru nokkrar og meðal annars sú að ég vil að þetta sé gert rétt eins og ég hef áður sagt. Ég hef líka verið giftur þrisvar og á nokkur uppkomin börn þannig að það er ekki vandamál. Aðal ástæðan er samt sú að ég hef gengið í gegnum nokkrar breytingar á síðustu árum og er að skapa mér feril sem kaupsýslumaður. Nú vil ég ekki hugsa um neitt annað en að ná frama í því og öll mín orka á að fara í vinnuna," segir Tom sem var í töluverðum vandræðum með að finna lækni til að framkvæma aðgerðina. Hann hefur þó fundið lækni í Bandaríkjunum sem mun framkvæma aðgerðina en ekki er komin endanleg dagsetning á hana. Aðspurður um nafnið Elmo sem hann hefur gefið typpinu á sér segir Tom að það hafi upphaflega verið tillögu frá gamalli kærustu. „Ég giftist henni síðan þegar ég var tvítugur og hún átján. Hún kallaði hann alltaf Elmo og það bara festist við hann." Tom segir að fjölskylda og vinir taki misjafnlega vel í hugmyndina en flestir vilji lítið tjá sig um uppátækið. „Dóttir mín sagði við mig um daginn að þetta væri minn líkami og það væri mitt að ákveða hvað ég gerði við hann. Níu af hverjum tíu vinum mínum hafa hinsvegar reynt að tala mig af þessu. Fólk er samt alltaf að ganga í gegnum allskonar breytingar í lífinu." Elmo er ekki eins og hvert annað typpi því í gegnum árin hefur Tom skreytt hann með allskonar húðflúrum sem hafa skemmst með árunum. „Ég hef sett á hann hjörtu, blóm o.fl. en með árunum hefur blekið eyðilaggst þar sem húðin er svo þunn. Það gerist ekki annarsstaðar á líkamanum en ég ætla að láta fjarlægja þau með laser aðgerð," segir Tom sem síðan ætlar að setja myndarlegan bandarískan fána á Elmo áður en hann fer norður á Húsavík. Uppátæki Toms hefur vakið nokkra athygli og fylgist t.a.m kvikmyndargerðarfólk með honum þessa dagana en það fólk er að gera heimildarmynd um Reðursafnið á Húsavík.
Tengdar fréttir Elmo væntanlegur á Reðursafnið Sigurður Hjartarson, forstöðumaður Reðursafnsins á Húsavík var í forvitnilegu viðtali á BBC World Service í morgun. Þar fór hann yfir sögu þessa merkilega safns og minntist á mann nokkurn sem hefur ánafnað safninu getnaðarlim sinn. Fleiri hafa raunar gert slíkt hið sama og lofað Sigurði lim sínum eftir sinn dag, en Stan nokkur Underwood bætir um betur, því hann ætlar að senda Sigurði liminn áður en hann deyr. Stan er við hestaheilsu, um sextugt og limur hans gengur víst undir nafninu Elmo. 26. maí 2008 14:40 Mest lesið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Sheeran bað aðdáendur afsökunar Tónlist Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Tónlist Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Fleiri fréttir Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Sjá meira
Elmo væntanlegur á Reðursafnið Sigurður Hjartarson, forstöðumaður Reðursafnsins á Húsavík var í forvitnilegu viðtali á BBC World Service í morgun. Þar fór hann yfir sögu þessa merkilega safns og minntist á mann nokkurn sem hefur ánafnað safninu getnaðarlim sinn. Fleiri hafa raunar gert slíkt hið sama og lofað Sigurði lim sínum eftir sinn dag, en Stan nokkur Underwood bætir um betur, því hann ætlar að senda Sigurði liminn áður en hann deyr. Stan er við hestaheilsu, um sextugt og limur hans gengur víst undir nafninu Elmo. 26. maí 2008 14:40