Þrýstingur eykst á að stjórn Seðlabankans verði sett af 26. september 2008 13:39
Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur við Háskóla Íslands, segir að hann sé algerlega sammála Ólafi Ísleifssyni, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, að sé það stefna Seðlabanka Íslands að sækjast ekki eftir lánalínu frá Seðlabanka Bandaríkjanna eigi umsvifalaust að setja stjórn bankans af. Orð Ólafs Ísleifssonar féllu í samtali við RÚV þegar hann var inntur eftir viðbrögðum við þeim orðum Tryggva Þórs Herbertssonar, efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar, um að fyrrgreind lánalína væri óþörf hér. Guðmundur Ólafsson segir að orð Tryggva Þórs séu mjög undarleg og honum komi á óvart að Tryggvi Þór sé orðinn einhverskonar blaðafulltrúi eða talsmaður ríkisstjórnarinnar. „Ég hélt að hann ætti að vera ráðgjafi stjórnarinnar og leiðbeina henni um efnahagsmál," segir Guðmundur. „Og ef þetta er ráðgjöfin þá er illt í efni fyrir þjóðina svo vægt sé til orða tekið." Annað sem vekur furðu Guðmundar Ólafssonar er allt þetta leynimakk sem er um aðgerðir Seðlabanka Íslands. „Það er afar mikilvægt að Seðlabankinn njóti trausts og virðingar út á við og það sé auðséð að bankinn vinni að bættum efnahag þjóðarinnar," segir Guðmundur. „En þeir kjósa að vinna sína vinnu í leyni fyrir öllum öfugt við aðra seðlabanka í heiminum. Hjá öðrum seðlabönkum er ítarlega greint frá því sem viðkomandi banki er að gera hverju sinni." Guðmundur Ólafsson hefur áður sagt hér á Vísi að hann telji Davíð Oddsson seðlabankastjóra vera helsta efnahagsvandamál þjóðarinnar. Hann stendur við þau orð. „Davíð ber öðrum mönnum fremur ábyrgð á þeirri stöðu sem við erum í, fyrst sem forsætisráðherra og síðan seðlabankastjóri," segir Guðmundur. „Nærtækast er að nefna að Davíð kom í veg fyrir að viðskiptabankarnir gætu gert upp í evrum. Ef það hefði verið leyft á sínum tíma væri gengi krónunnar ekki eins veikt og það er í dag."Guðmundur nefnir í þessu sambandi að gengi krónunnar hrynji á þriggja mánaða fresti sökum þess að bankarnir þurfi að huga að gengisvörnum sínum og liggi því inni með mikinn gjaldeyri. Hefði þeim verið leyft á sínum tíma að gera upp í evrum væri þetta vandamál ekki til staðar.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Samstarf Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira