Viðskipti innlent

Þrýstingur eykst á að stjórn Seðlabankans verði sett af

Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur við Háskóla Íslands, segir að hann sé algerlega sammála Ólafi Ísleifssyni, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, að sé það stefna Seðlabanka Íslands að sækjast ekki eftir lánalínu frá Seðlabanka Bandaríkjanna eigi umsvifalaust að setja stjórn bankans af.

Orð Ólafs Ísleifssonar féllu í samtali við RÚV þegar hann var inntur eftir viðbrögðum við þeim orðum Tryggva Þórs Herbertssonar, efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar, um að fyrrgreind lánalína væri óþörf hér.

Guðmundur Ólafsson segir að orð Tryggva Þórs séu mjög undarleg og honum komi á óvart að Tryggvi Þór sé orðinn einhverskonar blaðafulltrúi eða talsmaður ríkisstjórnarinnar. „Ég hélt að hann ætti að vera ráðgjafi stjórnarinnar og leiðbeina henni um efnahagsmál," segir Guðmundur. „Og ef þetta er ráðgjöfin þá er illt í efni fyrir þjóðina svo vægt sé til orða tekið."

Annað sem vekur furðu Guðmundar Ólafssonar er allt þetta leynimakk sem er um aðgerðir Seðlabanka Íslands. „Það er afar mikilvægt að Seðlabankinn njóti trausts og virðingar út á við og það sé auðséð að bankinn vinni að bættum efnahag þjóðarinnar," segir Guðmundur. „En þeir kjósa að vinna sína vinnu í leyni fyrir öllum öfugt við aðra seðlabanka í heiminum. Hjá öðrum seðlabönkum er ítarlega greint frá því sem viðkomandi banki er að gera hverju sinni."

Guðmundur Ólafsson hefur áður sagt hér á Vísi að hann telji Davíð Oddsson seðlabankastjóra vera helsta efnahagsvandamál þjóðarinnar. Hann stendur við þau orð. „Davíð ber öðrum mönnum fremur ábyrgð á þeirri stöðu sem við erum í, fyrst sem forsætisráðherra og síðan seðlabankastjóri," segir Guðmundur. „Nærtækast er að nefna að Davíð kom í veg fyrir að viðskiptabankarnir gætu gert upp í evrum. Ef það hefði verið leyft á sínum tíma væri gengi krónunnar ekki eins veikt og það er í dag."

Guðmundur nefnir í þessu sambandi að gengi krónunnar hrynji á þriggja mánaða fresti sökum þess að bankarnir þurfi að huga að gengisvörnum sínum og liggi því inni með mikinn gjaldeyri. Hefði þeim verið leyft á sínum tíma að gera upp í evrum væri þetta vandamál ekki til staðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×