SÍ á gjaldeyrisforða og lánalínur upp á 4,5 milljarða evra 16. maí 2008 09:20
Með gjaldeyrisskiptasamningum þeim sem Seðlabanki Íslands hefur nú gert við seðlabanka á Norðurlöndunum á bankinn nú gjaldeyrisforða og lánalínur upp á 4,5 milljarða evra. Í umræðunni að undanförnu hefur verið rætt um að til að vel ætti að vera þyrfti Seðlabankinn að eins gjaldeyrisforða og lánalínur upp á 6-8 milljarða evra eða í kringum 1.000 milljarða kr. Með samningunum við seðlabankana á Norðurlöndunum má segja að bankinn sé kominn ríflega hálfa leið að þessu marki. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningar Glitnis, segir að gjaldeyrisskiptasamningarnir við Norðurlöndin séu jákvætt spor í rétt átt en meira þurfi til svo vel eigi að vera. „En það er gott að sjá að Seðlabankinn á vini erlendis sem eru tilbúnir til að standa við bakið á bankanum ef illa fer," segir Ingólfur. Ingólfur telur að þetta síðasta útspil Seðlabankans muni hafa jákvæð áhrif á markaðinn. Raunar hefur gengið þegar styrkst um rúm fjögur prósent í morgun. Þá telur Ingólfur að skuldatryggingarálag bankana muni lækka í dag af þessum sökum. Raunar hafi álagið á ríkissjóð þegar lækkað um 45 punkta og á bankana um 10-20 punkta.
Tengdar fréttir Gengi krónu tekur stökkið Gengi krónunnar tók stökkið snemma í morgun og styrktist um rúm 4 prósent eftir að Seðlabanki Íslands tilkynnti um að hann hefði gert tvíhliða gjaldeyrisskipasamning við seðlabanka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur. Gengið sveiflaðist talsvert í kjölfarið. 16. maí 2008 09:16 Geir Haarde fagnar samningum Seðlabankans Geir Haarde forsætisráðherra segir í yfirlýsingu að hann fagni þeirri tilkynningu sem gefin var út í dag um tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamninga milli seðlabanka Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Íslands. 16. maí 2008 09:48 Seðlabankinn fær gjaldeyrisskipti upp á 1,5 milljarð evra Seðlabankar Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur hafa gert tvíhliða gjaldeyrisskiptasamninga við Seðlabanka Íslands. 16. maí 2008 09:06 Viðskiptaráð segir gjaldeyrissamkomulag gott fyrsta skref Viðskiptaráð fagnar samkomulagi Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Svíðþjóðar, Noregs og Danmerkur um tvíhliða gjaldeyrisskiptasamninga og segir þá mikilvægt fyrsta skref til að efla trúverðugleika bankans og íslensks hagkerfis. 16. maí 2008 10:32 Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira
Gengi krónu tekur stökkið Gengi krónunnar tók stökkið snemma í morgun og styrktist um rúm 4 prósent eftir að Seðlabanki Íslands tilkynnti um að hann hefði gert tvíhliða gjaldeyrisskipasamning við seðlabanka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur. Gengið sveiflaðist talsvert í kjölfarið. 16. maí 2008 09:16
Geir Haarde fagnar samningum Seðlabankans Geir Haarde forsætisráðherra segir í yfirlýsingu að hann fagni þeirri tilkynningu sem gefin var út í dag um tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamninga milli seðlabanka Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Íslands. 16. maí 2008 09:48
Seðlabankinn fær gjaldeyrisskipti upp á 1,5 milljarð evra Seðlabankar Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur hafa gert tvíhliða gjaldeyrisskiptasamninga við Seðlabanka Íslands. 16. maí 2008 09:06
Viðskiptaráð segir gjaldeyrissamkomulag gott fyrsta skref Viðskiptaráð fagnar samkomulagi Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Svíðþjóðar, Noregs og Danmerkur um tvíhliða gjaldeyrisskiptasamninga og segir þá mikilvægt fyrsta skref til að efla trúverðugleika bankans og íslensks hagkerfis. 16. maí 2008 10:32