Viðskipti innlent

Seðlabankinn fær gjaldeyrisskipti upp á 1,5 milljarð evra

Seðlabankar Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur hafa gert tvíhliða gjaldeyrisskiptasamninga við Seðlabanka Íslands.

Á vef Seðlabankans segir að samningarnir séu viðbúnaðarráðstöfun og veita Seðlabanka Íslands aðgang að evrum gerist þess þörf. Hver samningur um sig veitir aðgang að allt að 500 milljónum evra gegn íslenskum krónum eða samtals 1,5 milljarð evra.

Seðlabanki Íslands getur dregið á samningana þegar og ef nauðsyn krefur.

Ofangreindir samningarnir auka verulega aðgang Seðlabankans að erlendu lausafé og mun bankinn auka þann aðgang enn frekar á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×