Fram samdi við enskan bakvörð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. febrúar 2008 09:28 Sam Tillen í leik með Brentford gegn Northampton Town í ágúst árið 2006. Nordic Photos / Getty Images
Fram hefur samið við enska varnarmanninn Sam Tillen sem lék síðast með Brentford í ensku D-deildinni. Tillen er 22 ára gamall og hefur aðallega spilað sem vinstri bakvörður. Hann hefur þó leyst af í bæði stöðu hægri bakvarðar sem og hægri kantmanns. Tillen er uppalinn hjá Chelsea en gekk til liðs við Brentford árið 2005 er liðið lék í C-deildinni. Hann býr yfir talsverðri reynslu þrátt fyrir ungan aldur en hann á að baki 83 leiki í öllum keppnum með Brentford á undanförnum þremur árum. Hann skoraði eitt mark í þessum leikjum. Tillen kom við sögu í tveimur leikjum með Brentford í ágúst en hann lék síðast heilan leik með liðinu í síðasta heimaleik liðsins á síðasta tímabili. Hann fékk svo engin tækifæri með liðinu í haust og þann 10. janúar síðastliðinn var hann leystur undan samningi sínum við Brentford. „Hann vildi einfaldlega fá að prófa eitthvað nýtt," sagði Ríkharður Daðason, formaður Fram Fótboltafélags. „Hann kom hingað og æfði með liðinu og leist okkur vel á hann. Við höfum einnig átt í vandræðum með örvfætta leikmenn og þurft að nota aðra leikmenn í þá stöðu undanfarin ár. Þorvaldur (Örlyggsson, þjálfari) vill setja saman góða varnarlínu og er þetta hluti af því." Tillen í leik með U-17 landsliði Englands árið 2001.Nordic Photos / Getty Images „Sam býr einnig yfir talsverðri reynslu þrátt fyrir ungan aldur og vonumst við til að hann verði sem fyrst mikilvægur hlekkur í okkar liði," bætti Ríkharður við. Tillen kemur til landsins í næstu viku og verður þá alkominn til félagsins. Aðspurður um leikmannahópinn sagði Ríkharður að hann væri nú vel mannaður og væri félagið ekki með aðra leikmenn í sigtinu. „Við erum þó alltaf að skoða, eins og öll önnur félög." Annar ungur leikmaður, Heiðar Geir Júlíusson, kom aftur til Fram í haust eftir ársdvöl hjá Hammarby í Svíþjóð. Heiðar hefur undanfarna mánuði æft með liðum til að mynda í Noregi og Belgíu en æfir nú að fullum krafti með Fram. „Eins og staðan er nú gerum við ráð fyrir því að Heiðar verði með okkur í sumar. Ef það kemur tilboð í hann eða aðra leikmenn munum við skoða það með opnum huga. En það er ljóst að Heiðar bætti sig mikið í Svíþjóð og erum við gríðarlega ánægðir með að hafa fengið hann til okkar á nýjan leik."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira