Lækkun tekjuskatts fyrirtækja Teitur Björn Einarsson skrifar 13. mars 2008 08:00 Nýlega kynnti ríkisstjórnin tillögur sínar um að lækka tekjuskatt á fyrirtæki úr 18% og niður í 15%. Fyrirhuguð skattalækkun er hluti af ráðstöfunum ríkisvaldsins til að liðka fyrir gerð kjarasamninga milli atvinnurekenda og launþega sem undirritaðir voru fyrir skömmu. Fagna ber áætlunum um lægri tekjuskatt á fyrirtæki. Lægri skattar auka arðsemi fyrirtækja sem skilar sér í auknum umsvifum og stærri skattstofni ríkisins í fyllingu tímans. Auk þess tryggja frekari skattalækkanir aukna samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og opinbera staðfestu ríkisstjórnarinnar að ganga lengra í umbótum á skattkerfinu en aðrar þjóðir innan OECD. Stjórn SUS samþykkti nýverið ályktun þar sem skattalækkunum var fagnað en um leið gerðar alvarlegar athugasemdir við breytingar á útreikningi bóta og annarra tekjutilfærsluliða. Ungir sjálfstæðismenn hafa lengi barist fyrir lækkun skatta og einfaldara skattkerfi og lagt áherslu á að skattheimta sé notuð til tekjuöflunar fyrir hið opinbera en ekki til tekjujöfnunar. Heillavænlegast væri fyrir almenning og fyrirtæki að tekin yrði upp lágur flatur skattur á einstaklinga og á fyrirtæki. Þannig verður skattkerfið skilvirkara og gagnsærra en aðalatriði er að almenn velmegun eykst í þjóðfélaginu. Áherslan á einfalt skattkerfi á að vera markmið til framtíðar enda grunnforsenda að skattgreiðendur skilji hvernig ríkið heimtir af þeim skatta. Í boðuðum aðgerðum ríkisstjórnarinnar er því miður að finna atriði sem ganga þvert á þessa stefnu, t.d. auknar greiðslur úr ríkissjóði í formi bóta og styrkja. Slíkar úthlutanir í gegnum skattkerfið eru líklegar til að flækja kerfið og gera það óréttlátara. Best væri ef bótakerfið stæði fyrir utan skattkerfið og miðaðist við að hjálpa þeim sem á þurfa að halda en ekki vera notað til að jafna tekjur milli einstaklinga í samfélaginu. Ríkisstjórnin hefði betur kynnt hvernig hún hefði hugsað sér að lækka tekjuskattsprósentu á einstaklinga og færa hana nær skattheimtu á fyrirtæki. Þá er eðlilegt að gjalda varhug við því hvernig ríkisvaldið blandar sér í gerð kjarasamninga á frjálsum vinnumarkaði og tekur beinan þátt í að liðka fyrir gerð þeirra með aðgerðum sem flækja skattkerfið. Nefna má að það var vegna kröfu frá verkalýðsforystunni sem síðasta ríkisstjórn hætti við 1% lækkun tekjuskatts. Umhugsunarefni er að í kröfugerð verkalýðsforystunnar um kaup og kjör fylgja iðulega kröfur um lagabreytingar sem varða samfélagið allt en ekki bara umbjóðendur þeirra. Hvað sem því líður er ástæða til að hrósa aðilum vinnumarkaðarins fyrir skynsamlega kjarasamninga og samþykkja að hækka lægstu laun án þess að stefna kaupmætti launa eða stöðugleika á vinnumarkaði í hættu. Að sama skapi verður gerð sú krafa til hins opinbera að ríki og sveitarfélög sýni sams konar skynsemi við gerð launasamninga við opinbera starfsmenn. Það væri til að æra óstöðugan ef launasamningar ríkisstarfsmanna væru úr takti við nýgerða kjarasamninga. Það er atvinnulífið sem dregur velferðarvagninn en ekki öfugt og miðað við ástand efnahagsmála er nauðsyn að hið opinbera sýni mikið aðhald í rekstri og fjárfestingum. Höfundar eru stjórnarmenn í SUS. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson Skoðun Aðdragandi aðildar þarf umboð Erna Bjarnadóttir Skoðun Kynbundið ofbeldi Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Börnin og hungursneyðin í Gaza Sverrir Ólafsson Skoðun Þétting byggðar er ekki vandamálið Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Þið voruð í partýinu líka! Gísli Sigurður Gunnlaugsson Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir Skoðun Hverjir eru komnir með nóg? Nichole Leigh Mosty Skoðun Lýðheilsan að veði? Willum Þór Þórsson Skoðun Að leigja okkar eigin innviði Halldóra Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Börnin og hungursneyðin í Gaza Sverrir Ólafsson skrifar Skoðun Kynbundið ofbeldi Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Aðdragandi aðildar þarf umboð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson skrifar Skoðun Þétting byggðar er ekki vandamálið Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Þrengt að þjóðarleikvanginum Þorvaldur Örlygsson skrifar Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar Skoðun Alltof mörg sveitarfélög á Íslandi! Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Lýðheilsan að veði? Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Evrópusambandsaðild - valdefling íslensks almennings Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Köllum Skjöld Íslands réttu nafni: Rasískt götugengi Ian McDonald skrifar Skoðun Hverjir eru komnir með nóg? Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Að leigja okkar eigin innviði Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Málþóf sem valdníðsla Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Klaufaskapur og reynsluleysi? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig spyr ég gervigreind til að fá besta svarið? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu bitur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Er hægt að læra af draumum? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Afstæði ábyrgðar Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Fjárhagslegt virði vörumerkja Elías Larsen skrifar Skoðun Við ákærum – hver sveik strandveiðisjómenn? Kjartan Páll Sveinsson skrifar Skoðun Þið voruð í partýinu líka! Gísli Sigurður Gunnlaugsson skrifar Skoðun Af hverju varð heimsókn framkvæmdastjóra ESB að NATO-fundi? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Veimiltítustjórn og tugþúsundir dáinna barna Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid skrifar Skoðun Swuayda blæðir: Hróp sem heimurinn heyrir ekki Mouna Nasr skrifar Skoðun Skattar fyrst, svo allt hitt – og hagræðingin sem gleymdist Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Sjá meira
Nýlega kynnti ríkisstjórnin tillögur sínar um að lækka tekjuskatt á fyrirtæki úr 18% og niður í 15%. Fyrirhuguð skattalækkun er hluti af ráðstöfunum ríkisvaldsins til að liðka fyrir gerð kjarasamninga milli atvinnurekenda og launþega sem undirritaðir voru fyrir skömmu. Fagna ber áætlunum um lægri tekjuskatt á fyrirtæki. Lægri skattar auka arðsemi fyrirtækja sem skilar sér í auknum umsvifum og stærri skattstofni ríkisins í fyllingu tímans. Auk þess tryggja frekari skattalækkanir aukna samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og opinbera staðfestu ríkisstjórnarinnar að ganga lengra í umbótum á skattkerfinu en aðrar þjóðir innan OECD. Stjórn SUS samþykkti nýverið ályktun þar sem skattalækkunum var fagnað en um leið gerðar alvarlegar athugasemdir við breytingar á útreikningi bóta og annarra tekjutilfærsluliða. Ungir sjálfstæðismenn hafa lengi barist fyrir lækkun skatta og einfaldara skattkerfi og lagt áherslu á að skattheimta sé notuð til tekjuöflunar fyrir hið opinbera en ekki til tekjujöfnunar. Heillavænlegast væri fyrir almenning og fyrirtæki að tekin yrði upp lágur flatur skattur á einstaklinga og á fyrirtæki. Þannig verður skattkerfið skilvirkara og gagnsærra en aðalatriði er að almenn velmegun eykst í þjóðfélaginu. Áherslan á einfalt skattkerfi á að vera markmið til framtíðar enda grunnforsenda að skattgreiðendur skilji hvernig ríkið heimtir af þeim skatta. Í boðuðum aðgerðum ríkisstjórnarinnar er því miður að finna atriði sem ganga þvert á þessa stefnu, t.d. auknar greiðslur úr ríkissjóði í formi bóta og styrkja. Slíkar úthlutanir í gegnum skattkerfið eru líklegar til að flækja kerfið og gera það óréttlátara. Best væri ef bótakerfið stæði fyrir utan skattkerfið og miðaðist við að hjálpa þeim sem á þurfa að halda en ekki vera notað til að jafna tekjur milli einstaklinga í samfélaginu. Ríkisstjórnin hefði betur kynnt hvernig hún hefði hugsað sér að lækka tekjuskattsprósentu á einstaklinga og færa hana nær skattheimtu á fyrirtæki. Þá er eðlilegt að gjalda varhug við því hvernig ríkisvaldið blandar sér í gerð kjarasamninga á frjálsum vinnumarkaði og tekur beinan þátt í að liðka fyrir gerð þeirra með aðgerðum sem flækja skattkerfið. Nefna má að það var vegna kröfu frá verkalýðsforystunni sem síðasta ríkisstjórn hætti við 1% lækkun tekjuskatts. Umhugsunarefni er að í kröfugerð verkalýðsforystunnar um kaup og kjör fylgja iðulega kröfur um lagabreytingar sem varða samfélagið allt en ekki bara umbjóðendur þeirra. Hvað sem því líður er ástæða til að hrósa aðilum vinnumarkaðarins fyrir skynsamlega kjarasamninga og samþykkja að hækka lægstu laun án þess að stefna kaupmætti launa eða stöðugleika á vinnumarkaði í hættu. Að sama skapi verður gerð sú krafa til hins opinbera að ríki og sveitarfélög sýni sams konar skynsemi við gerð launasamninga við opinbera starfsmenn. Það væri til að æra óstöðugan ef launasamningar ríkisstarfsmanna væru úr takti við nýgerða kjarasamninga. Það er atvinnulífið sem dregur velferðarvagninn en ekki öfugt og miðað við ástand efnahagsmála er nauðsyn að hið opinbera sýni mikið aðhald í rekstri og fjárfestingum. Höfundar eru stjórnarmenn í SUS.
Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson Skoðun
Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir Skoðun
Skoðun Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson skrifar
Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar
Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid skrifar
Skoðun Skattar fyrst, svo allt hitt – og hagræðingin sem gleymdist Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson Skoðun
Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir Skoðun