Barnaníðingurinn Ágúst Magnússon býr á höfuðborgarsvæðinu Breki Logason skrifar 13. febrúar 2008 14:54 Ágúst Magnússon.
Barnaníðingurinn Ágúst Magnússon sást í Reykjanesbæ í gærdag. Hann mun þó ekki búa í bænum heldur er hann með dvalarstað á höfuðborgarsvæðinu. Ágúst ók um á grænni Toyotu Corollu sem er í eigu föður hans. Í frétt Víkurfrétta síðan í gærkvöldi kom fram að sést hafi til Ágústar á Hafnargötunni í Reykjanesbæ og á vappi í kringum Tónlistarskóla bæjarins. Foreldrar í Reykjanesbæ hafa áhyggjur af börnum sínum og voru nemendur í Myllubakkaskóla vöruð við ferðum barnaníðings og beðin um að gefa sig ekki á tal við ókunnuga samkvæmt Víkurfréttum. Brynja Árnadóttir skólastjóri í Myllubakkaskóla segir að einhver misskilningur sé í gangi en hún heyrði fyrst af málinu í morgun. „Það hefur engin hjá okkur rætt við börnin vegna málsins. Ég hef talað við alla hér í skólanum og það kannast enginn við það," sagði Brynja. Hún vissi ekki hvaðan þessi orðrómur kæmi en kennarar í skólanum hafa ekki orðið varir við Ágúst í kringum skólann. Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri í Reykjanesbæ tekur í sama streng og segir málið ekki hafa komið inn á borð til sín. „Ég hef heyrt þessar fréttir eins og aðrir. Það er ekkert einsdæmi að þegar menn koma úr afplánun og aftur út í samfélagið að það verði ákveðin viðbrögð, sem ég tel eðlilegt," segir Hjördís sem segir mikilvægt að foreldrar séu vakandi. „Ég skil það að foreldrar vilji vera á verði og vonandi eru þeir það alltaf," segir Hjördís sem ekki hafði fengið neina ábendingu frá foreldrum vegna Ágústar í dag. Bíllinn sem Ágúst var á í gær. Samkvæmt heimildum Vísis er búið að útvega Ágústi dvalarstað á höfuðborgarsvæðinu og því er hann ekki fluttur í Reykjanesbæ. Það var í höndum fangelsismálastofnunnar og félagsmálayfivalda í Reykjavík að útvega honum húsnæði, en hann fékk ekki að klára afplánun sína á áfangaheimilinu Vernd þar sem barnaníðingum er það nú óheimilt. Árið 2004 var Ágúst dæmdur fyrir að níðast á sex drengjum og hóf í kjölfarið afplánun á Litla Hrauni. Þann 1.febrúar fékk hann hinsvegar reynslulausn og þarf að tilkynna reglulega um ferðir sína eftir því sem Vísir kemst næst. Einnig má hann ekki stunda staði þar sem börn eru í tómstundum. Bíllinn sem Ágúst var á í gær er í eigu föður hans en það er græn Toyota Corolla og hefst skráningarnúmer hans á bókstöfunum DN.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira